Opið hús: 12.10.2025, 13:00 - 12.10.2025, 13:30

Móstekkur 6c 201 800

Selfoss

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg 133,6 fm 4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli með sérinngangi, vel skipulögð, aukin lofthæð, hljóðdúkur í lofti í alrými, innfelld lýsing, vandaðar innéttingar frá Voke3. Afhendist fullbúið með gólfefnum, hiti í gólfi. Um er að ræða nýbyggt fjórbýli sem er tilbúið til afhendingar. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með litaðri álklæðningu, gluggar og hurðir eru úr áli og þak klætt með tvöföldum tjörudúk.

 Staðsetning er einstaklega góð í rólegu hverfi rétt við skóla og leiksskóla.

 

Bókaðu skoðun hjá sölumönnum.

NÁNARI LÝSING:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp. barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskápum. Hjónaherbergi rúmgott með skápum sem ná upp í loft. Baðherbergi með góðri innréttingu, upphengdu salerni, walk-in sturta með innbyggðum tækjum, flísalagt gólf og veggir að hluta. Eldhús er í alrými ásamt stofu og borðstofu. Eldhús er með fallegri innréttingu og góðri vinnueyju, helluborð er í eyju. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Stofan er rúmgóð, stórir gluggar eru í rýminu sem veita mika birtu. Úr borðstofu er útgengt út á góða verönd. Þvottahús og geymsla eru í sama rými innan íbúðar, góð innrétting með vaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er út á framlóð og baklóð. Bílastæði með staur fyrir rafhleðslu fylgir eigninni.

GÓLFEFNI: Fallegt harðparket á öllum gólfum nema flísar á anddyri, baðherbergi og þvotthúsi/geymslu.

Virkilega vönduð, björt og falleg eign á rólegum og góðum stað á Selfossi.

Allar nánari upplýsingar veita:

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691 2312 eða osa@miklaborg.is

Bára Gunnlaugsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899 8809 eða bara@miklaborg.is

Fasteignin Móstekkur 6c 201

133.6 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 598.054 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 64.700.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
79.900.000 Kr.
Hafðu samband