Mjóahlíð 10 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulögð fjögurra herbergja endaíbúð með suður-svölum á vinsælum stað í Hlíðunum. Örstutt í öll skólastig og íþróttasvæði Vals á Hlíðarenda.
Eigninni hefur verið breytt frá upphaflegum teikningum og var eldhúsið fært inn í aðra stofuna og hefur eignin þrjú svefnherbergi í dag.


Allar nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Forstofa með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með stórum glugga til suðurs. Parket á gólfi.
Eldhús og borðstofa saman í rúmgóðu rými. Þaðan er gengið út á svalir til suðurs. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I mjög rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt. Baðkar með sturtu.

Eigninni fylgir 50% hlutdeild í 14 fm geymslu í sameign. Sameiginlegt þvottahús.
Við hlið hússins er einkabílastæði með snjóbræðslu.

Fallegur gróinn suður garður og frábært leiksvæði við lóðarmörkin.

Um er að ræða vel staðsetta og rúmgóða fjölskyldueign á vinsælum stað í Hlíðunum.

Allar nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Fasteignin Mjóahlíð 10

103.0 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1945
Fermetraverð : 872.816 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 85.000.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

diddi 2
Ingimundur Kristján Ingimundarson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

-

89.900.000 Kr.
Hafðu samband