Miðhraun (leiga) 13
210 GarðabærMiðhraun (leiga) 13 210
GarðabærLýsing
Miklaborg kynnir: Til leigu 1538,1 fm atvinnuhúsnæði sem skiptist upp í verkstæði eða lager, verslun og skrifstofur á efri hæð. Mjög bílastæði og lóðin er steypt með góðu burðarþoli.
Eignin er laus frá og með haustinu 2026
Nánari lýsing: Jarðhæð að framan skiptist í verslunarrými með góðum gluggum og skrifstofum innst í rýminu. Til hliðar er lager, iðnaðarbil eða verkstæði með tveimur innkeyrsluhurðum sem tengist stærri lager. Inn af verslunarrými er millilager en innangengt er í hann frá verslun. Inn af millilager er stór rými fyrir verkstæði, lager eða iðnað með mikill lofthæð, þar eru tvær góðar hurðir með minnst um 4 metra lofthæð. Á efri hæð eru skrifstofur, vinnuherbergi og starfsmannaðstaða en aðkoma er í gegnum stigahús sem er bæði innangengt frá verslun og með sérinngangi af lóð. Efri hæðin er tvískipt og væri möguleiki á að tvö fyrirtæki hefðu þar aðstöðu.
Bílaplan og aðkoma er steypt og því gott burðarþol fyrir þungaflutninga.
Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is