Opið hús: 03.05.2026, 13:00 - 03.05.2026, 14:00

Miðbraut 17 170

Seltjarnarnes

Lýsing

Miklaborg kynnir: Miðbraut 17, 170 Seltjarnarnesi, 140,2 fm neðri sérhæð í 2-býli. Sérinngangur. Stór verönd út frá svefnherbergi. Parket, dúkur og flísar á gólfum. Húsið stendur á 750 fm eignalóð. Þessi íbúð á 30% eignahlut. Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð með stórum sturtuklefa. Geymsla innan íbúðar ásamt geymsluskúr á lóðinni sem tilheyrir þessari íbúð. Gott innra skipulag og stutt í margvíslega þjónustu. Góð aðkoma.

Nánari lýsing: Þegar inn er komið tekur við forstofa með fataskáp. Sameiginlega þvottahúsið m/glugga til hægri og geymsla í endanum. Forstofuhurð. Við tekur stofa og borðstofa ásamt eldhúsi, eldhúskrókur, hvít innrétting með góðum tækjum. Stórir og góðir gluggar bæði í eldhúsi og stofu. Á herbergjagangi eru þrjú svefnherbergi ásamt baðherbergi með baðkari, innréttingu, handklæðaofni, glugga og gólfhita. 60 fm verönd út frá hjónaherbergi með heitum potti. Í heildina góð íbúð á eftirsóknarverðum stað í rótgrónu hverfi á Nesinu.


Nánari upplýsinga gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.

Fasteignin Miðbraut 17

140.2 5 Herbergi 2 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1964
Fermetraverð : 890.870 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 108.850.000
Þvottahús : Sameiginlegt á hæð

Nánari upplýsingar veitir:

g
Gústaf Adolf Björnsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og íþróttafræðingur

Gústaf hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2005. Hann er íþróttafræðingur að mennt og starfaði um árabil sem íþróttakennari og þjálfari í fótbolta og handbolta. Gústaf er búsettur í Kópavogi, er kvæntur, á þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. Áhugamál Gústafs eru íþróttir og útivist, ferðalög og dægurmál.

124.900.000 Kr.
Hafðu samband