Lindarbraut 25
170 SeltjarnarnesLindarbraut 25 170
SeltjarnarnesLýsing
Rúmgott og skemmtilegt 336 fm fjölskylduhús á góðum stað á Seltjarnarnesi með aukaíbúð í kjallara og rúmgóðum frístandandi bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason, sími: 822 2307, netfang: olafur@miklaborg.is.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri og þaðan gengið inn í hol. Tvær rúmgóðar stofur ásamt góðu sjónvarpsholi með útgengt á stórar suðurverönd og þaðan út í garðinn. .Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, borðkrók og tengi fyrir uppþvottavél. Gestasalerni og þvottahús eru á hæðinni. Úr holi er gengið upp á svefnherbergisgang. Þrjú góð svefnherbergi eru á pallinum ásamt rúmgóðu baðherbergi með glugga, baðkari og sturtu. Í kjallara er rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og tvær stórar geymslur. Einnig er búið að útbúa í kjallara góða 2ja herbergja aukaíbúð með sérinngangi sem gefur góðar leigutekjur. Bílskúrinn er rúmgóður og hefur verið endurnýjaður mikið að innan og er nýttur í dag sem stúdíó.
Rúmgóð eign sem gefur mikla möguleika og getur haldið utan um stóra fjölskyldu.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma: 822 2307 eða olafur@miklaborg.is.