Laugavegur 86-94 101
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Fallega 2ja herbergja íbúð merkt 010311 á 3. hæð og snýr til suðurs. Birt stærð íbúðar er 75fm, þar af geymsla 6,5fm, sem er í dag notuð sem vinnurými/skrifstofa.
Glæsilegt lyftuhús í miðbænum. Byggt árið 2006. Stórar sameiginlegar þaksvalir í sameign hússins.
Falleg 2ja herbergja íbúð á 3. hæð sem snýr til suðurs.
Birt stærð íbúðar er 75fm, þar af er geymsla 6,5fm. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, eldhús, rúmgóða stofu og mjög stórt svefnherbergi. Geymsla innan íbúðar og svalir til suðurs. Gólfhiti er í allri íbúðinni og mynddyrasími til staðar.
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með fatahengi og þvottahús inn af forstofu íbúðar.
Baðherbergi er með stórri sturtu og stórum speglaskáp. Glæsilegar vandaðar flísar á gólfi og veggjum.
Eldhús er hluti af stofu og með fallegum viðarinnréttingum í opnu rými. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Rúmgóð stofa með stórum gólfsíðum glugga sem snýr til suðurs. Útgengt er á skjólgóðar suður svalir.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með vönduðum stórum skápum.
Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
37 bílastæði fylgja húsinu á baklóð í óskiptri sameign. Ennfremur er bílakjallari undir húsinu í eigu Reykjavíkurborgar sem býður eigendum hússins sérstök kjör á gjaldtöku.
Glæsileg sameign með dökku granít á gólfum og stigagangi.
Stórar sameiginlegar þaksvalir eru í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is