Opið hús: 18.01.2026, 13:00 - 18.01.2026, 13:30

Laugavegur 39 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérmerktu bílastæði við Laugaveg 39 í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 123,3, með henni fylgir sérmerkt bílastæði á baklóð og rúmgóð 23,3 fm geymsla í kjallara. Eignin er í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi sem var byggt árið 1942. Eignin skiptist í anddyri, tvö rúmgóð svefnherbergi, bjarta stofu, tvö baðherbergi, eldhús með eyju, svalir og bílastæði. Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík þar sem stutt er í verslanir, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og sundlaug.

Gengið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp. Loft er klætt með hljóðdempandi hnotuplötum og fallegri innbyggðri central lýsingu.
Íbúðin skiptist í:

  • Tvö rúmgóð svefnherbergi með eikarparketi og sérsmíðuðum innréttingum.
  • Stofu með eikarparketi og hnotupanil á vegg.
  • Tvö baðherbergi flísalögð í hólf og gólf, bæði með gólfhita. Annað með „walk-in“ sturtu og Ifø innréttingu frá Tengi, hitt með þvottaaðstöðu.
  • Eldhús frá HTH með innbyggðum tækjum, fallegri eldhúseyju úr límtré og helluborði.
  • Borðstofu með útgengi á svalir sem snúa í norður að friðsælli baklóð þar sem bílastæðið er.

Húsið hefur hlotið mikla endurnýjun, undanfarin ár m.a.:

  • 2015 Skipt um þak.
  • 2016 Stigagangur málaður
  • 2016-2018 Múrviðgerðir að utan; fraamhlið og bakhlið og svalir steyptar up og nýtt handrið og niðurföll endurnýjuð þar sem þurfti.
  • 2018 Gluggar málaðir og svalahurðir.
  • 2019 Ný teppi á stigagang og stigagangur málaður þar sem þurfti eftir breytingar. Aðalanddyri flísalagt.
  • 2020 Klæðning á svölum á 4. hæð.
  • 2021 Ný ljós með hreyfiskynjurum í stigagng og kjallara.
  • 2021 Skyggnið fyrir ofan 1. hæðina endurnýjað en viðgerð ekki lokið.
  • 2022 Þak þvegið og málað. Hiti íbúða sameinað á einn mæli ofl. smálegt.
  • 2023 vinna við skyggnið klárað.


Eignin er á vinsælum og eftirsóttum stað í miðborginni, þar sem stutt er í allar helstu verslanir, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og sundlaug.


Fyrir nánari upplýsingar eða bóka skoðun:

Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða Steinn@miklaborg.is

Kristín Avon Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is


Fasteignin Laugavegur 39

123.3 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1942
Fermetraverð : 717.762 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 88.300.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

steini
Steinn Andri Viðarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Steinn útskrifaðist sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2023. Hann hefyr brennandi áhuga á golfi og knattspyrnu. Steinn er Liverpool maður og er búsettur í Grafarvogi ásamt unnustu og syni.

88.500.000 Kr.
Hafðu samband