Opið hús: 14.07.2026, 12:30 - 14.07.2026, 13:00

Laugaborg (308) 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Laugaborg við Kirkjusand er nýtt fjölbýlishús á 3–6 hæðum með skjólgóðum inngarði og sameiginlegum þakgarði sem býður upp á notalegt útsýni og dýrmætar stundir utandyra – í miðbænum sjálfum. Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og skipulagi, allar með gólfhita, vönduðum innréttingum og svölum eða sérafnotafleti. Allur úthringur hússins er með svalalokun sem stenst íslensk skilyrði og þolni stuðla. Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1000 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum. Lyftur eru í öllum stigagöngum. Ítarlegar upplýsingar má sjá á https://105midborg.is/ibudir/borgartun-41


Bílakjallari: Stór samfelldur bílakjallari og hafa íbúar möguleika á aðgangi að einu eða fleiri bílastæðum í þessum bílakjallara gegn hóflegugjaldi til að mæta rekstrarkostnaði.

Nýr íbúðakjarni sem samanstendur af 115 íbúðum á 6 hæðum afhendast í 4 áföngum . Íbúðarkjarninn í randbyggðarformi umhverfis innigarð. Húsið er partur af nýju hverfi á Kirkjusandi. Græn svæði umlykja bygginguna ásamt þakgarði.

Sjálfstætt loftræstikerfi í öllum íbúðum. Frábær staðsetning rétt við Laugardalinn mikil áhersla er lögð á vistvænar samgöngur og góða aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi í hverfinu.



Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING:

Laugaborg (íbúð 308) er frábær 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvölum og svalalokun.

Íbúðin skipar, forstofu með skápum, rúmgott hjónaherbergi með fataskápum upp í loft, auka herbergi, baðherbergi, þvottahús, gott alrými með samlyggjandi eldhúsi og stofu og útgengt á suður svalirnar.
Forstofa: er með með fataskáp sem nær upp í loft.
Svefnherbergi: Tvö herbergi, annað með fataskáp er nær upp í loft.
Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting með quartz plötu á borði. Eldhús skilast með Span helluborði með innbyggðum gufugleyp og bakaraofn með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði
Stofa/alrými: Björt með útgengi á suður svalir sem eru yfirbyggðar.
Baðherbergi: Baðherbergi er með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger. Borðplata með quartz plötum. Sturta með Unidrain gólfrennupakka.
Þvottahús: Innan íbúðar með flísum á gólfum og upphengdum innréttingum.

Geymsla: er 8,8 fm

(Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign.)


Nánari upplýsingar veita:

Kjartan í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Jón Rafn í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Móeiður í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Íris Arna í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Steinn í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is

Gústaf í síma 895-7205 eða gustaf@miklaborg.is

Gabríel Máni í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Fasteignin Laugaborg (308)

92.3 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2025
Fermetraverð : 1.034.670 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 83.100.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

Böddi
Böðvar Þ. Eggertsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Böddi starfaði áður sem hárgreiðslumaður í 34 ár og hefur mjög góða reynslu í mannlegum samskiptum. Hann hefur einnig unnið við að hanna innanhúss, hótelíbúðir, viðburðarhús og tvö einbýlishús á síðustu þremur árum og stýrði einnig að hluta uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi. Hann hefur átt og rekið hárgreiðslustofur bæði hér og í Svíþjóð. Böddi er giftur og á 4 dætur og er búsettur í Hafnarfirði. Áhugamál eru líkamsrækt og allt sem viðkemur mótorsporti og hraða.

95.500.000 Kr.
Hafðu samband