Lækjargata 4 600

Akureyri

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Lækjargata 4 í innbænum á Akureyri.

Eign sem hefur verið mikið endurnýjuð.

Húsið skiptist í tvær hæðir, ris og kjallara.

Samtals 247,7 m²

Húsið er staðett á horni Lækjargötu og Spítalavegar.

Nánari lýsing:

1. hæð: Forstofa, eldhús, stofa, borðstofa og salerni.

2. hæð: Baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofa.

Ris: Stórt herbergi og baðherbergi.

Kjallari: Þvottahús og gott geymslupláss.

Húsið hefur mikið verði endurnýjað s.s. raf- og vatnslagnir, gluggar, gler, þak, klæðning og einangrun, innréttingar osfrv. Eignin hefur verið í skammtímaleigu undanfarið og er vel búin húsbúnaði sem getur fylgt með við sölu.

Á gólfum hússins er að stærstum hluta hvíttaðar gólffjalir að votrýmum undanskildum en þar eru flísar.

Í kjallara eru máluð gólf. Á 1. og 2. hæð eru gólfjalir nýjar en í risi eru gömlu gólffjalirnar málaðar.

Baðherbergi í risi er með baðkari og sturtu og flísum á veggjum.

Baðherbergi á 2. hæð er flísalagt og með sturtu.

Á jarðhæð er salerni. Flísarnar eru fallegar með munstri og öll eru rýmin haganlega frágengin.
Eldhúsið er opið og bjart. Þar er ljós innrétting og stór gluggi til norðurs og opið yfir í borðstofu.

Borðstofan tengist svo yfir í stofuna.

Inngangur er til suðurs en mest er gengið inn um bakdyrainngang frá Spítalavegi.
Í risinu er stórt svefnherbergi loftin eru tekin upp og gömlu bitarnir fá að njóta sín. Gluggi til austur er úr herberginu með fallegu útsýni út á pollinn.

Norðan við húsið er endurnýjaður pallur.

Falleg eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir Jason Guðmundsson lögmaður jason@miklaborg.is

Fasteignin Lækjargata 4

247.7 10 Herbergi 3 Stofur 4 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1870
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 77.400.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jasonsaeti
Jason Guðmundsson
Eigandi, lögmaður og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, lögg. leigumiðlari

Jason er annar eiganda Mikluborgar og útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2008. Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu vorið 2000. Jason hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2009. Jason hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996. Hann sér um samningagerð og sölu fasteigna. Jason býr á svæði 104, er giftur og á þrjú börn, einn strák og tvær stúlkur. Jason er eigandi Mikluborgar.

0 Kr.
Hafðu samband