Kringlan 7 103

Reykjavíkurborg

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt verslunar og þjónustuhúsnæði á eftirsóttum stað rétt við Kringluna í Rvk.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Um er að ræða verslunar og þjónustuhúsnæði þar sem hárgreiðslustofan Salon VEH hefur rekin við góðan orðstýr í tugi ára, ásamt heildsölu. Húsnæðið er að mestu opin vinnurými en bakatil eru lager, kaffistofa, snyrting, skrifstofur og fundarherbergi en heildsala er einnig rekin í húsnæðinu. Léttir timburveggir aðskilja rýmin sem auðvelda má taka niður og opna húsnæðið betur. Gólf eru flotuð og lökkuð og innfelld lýsing er í loftum. Opið er úr sameign hússins inn í húsnæðið. Hægt er að leigja bílastæði í bílakjallara hússins og í dag er í gildi leigusamningur um 3 bílastæði, en þar er fjöldi stæða. Innangengt er úr bílageymslunni í húsnæðið.

Frábær staðsetning fyrir verslunar og þjónustuhúsnæði. Nóg af bílastæðum fyrir framan húsið. Stórir verslunargluggar snúa út að götu og rýmið hefur því frábært auglýsingagildi. Verslunarhúsnæði á þessum stað koma mjög sjaldan í sölu.

Fyrir liggur að húsfélagið hefur farið í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á sameign hússins frá árinu 2021 og er viðbúið að framkvæmdum ljúki bráðlega. Kringlan 7, húsfélag á 20,67% eignarhlut í húsinu Kringlan 7 og hefur haft leigutekjur af þessum eignum frá því að húsið var byggt. Beinn eignarhlutur seljanda í húsfélaginu er 4,37% en húsfélagið er eigandi að lóðinni Kringlan 7 þar sem fyrirhugaðar eru nýbyggingar atvinnu- og íbúðarhúsnæði sem hluti af uppbyggingu Kringlusvæðisins. Eignarhlutur í sameign hússins er 3,47% og eignarhlutur í lóð er 2,44%.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Fasteignin Kringlan 7

281.7 0 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1981
Byggingargerð : -
Fasteignamat : 140.200.000

Nánari upplýsingar veitir:

throstur
Þröstur Þórhallsson
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali

Þröstur hefur starfað við sölu fasteigna frá árinu 1996.Hann fékk löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali vorið 2000. Þröstur býr í Fossvoginum og er Víkingur en hann spilaði bæði fótbolta og handbolta með Víking á yngri árum, er giftur og á þrjú börn. Áhugamál eru íþróttir og útivera. Golf og skák eru í miklu uppáhaldi og þess má geta að Þröstur er stórmeistari í skák, fyrrverandi Íslandsmeistari og þrautreyndur landsliðsmaður.

Kr.
Hafðu samband