Kolagata 2 (311) 101

Reykjavík

Lýsing

Móeiður Svala og Miklaborg kynna í einkasölu: Kolagata 2 (íbúð 311)


Frábær 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með tveimur baðherbergjum og 3m lofthæð!

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í kjallara. Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort samkvæmt verðskrá.


Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík með mannlífi allt um kring, stutt í alla helstu þjónustu og verslun, sögu og menningu. 3 m lofthæð, 2,5 m háar innihurðir. Tvö baðherbergi.

**Getur selst fullbúin með innbúi fyrr sama verð ef kaupandi vill**


Bókaðu skoðun!

Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali throstur@miklaborg.is
 

Nánari lýsing:

Anddyri með fataskápum, lýsing að innan og harðparket á gólfi.
Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu frá Noblessa (GKS) með ljúflokum á skápum og skúffum. Hvít Meganite borðplata, innbyggður vaskur og klæðning milli skápa er úr sama efni. Vola blöndunartæki í eldhúsi og einnig eru vönduð tæki frá Siemens. Blástursofn og helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Dunavox vínkælir og gufugleypir er frá Elica.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými ásamt eldhúsi, útgengt er á svalir sem vísa í suðaustur. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum fataskápum með lýsingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi , flísalagt með ítölskum flísum. Innrétting frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Mini Glo Ball speglalýsing frá Flos og Vola hreinlætistæki. Rúmgóð "walk in" sturta.
Herbergi 2 með fataskápum með lýsingu. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi með vandaðri innréttingu frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Mini Glo Ball speglalýsing frá Flos ásamt Vola hreinlætistæki. Rúmgóð "walk in" sturta.
Þvottahús með vandaðri innréttingu og vaski. Flísar á gólfi.
Geymsla (7.9 fm) er í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara.


**Getur selst fullbúin með innbúi fyrr sama verð ef kaupandi vill**


Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar en stofan var hönnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt sem vinnur í samstarfi með Fernando de Mendonca og öflugu teymi arkitekta frá öllum heimshornum. Byggingaraðili hússins er ÞG Verktakar ehf og Guðbjörg Magnúsdóttir sá um innanhússhönnun.


Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali throstur@miklaborg.is
 

Fasteignin Kolagata 2 (311)

92.5 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2018
Fermetraverð : 1.286.486 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 101.500.000

Nánari upplýsingar veitir:

m2
Móeiður Svala Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Móeiður útskrifast sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2024. Fyrir utan gríðarlegan áhuga hennar á arkítektúr og innanhúshönnun þá hefur hún verið í hestamennsku frá ungum aldri og elskar alla útivist. Hún er alin upp í hlíðunum Reykjavík en býr nú í Garðabænum.

899-8278
119.000.000 Kr.
Hafðu samband