Opið hús: 08.04.2026, 16:30 - 08.04.2026, 17:00

Kleppsvegur 42 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Vel skipulagða ca.120 fm. íbúð á 1. hæð í góðu

fjölbýlishúsi við Kleppsveg í Reykjavík.

Íbúðin skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi með möguleika á fjórum, auk þvottavélaaðstöðu/geymslu innan íbúðar.

Stutt er í skóla og leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð, íþróttasvæði, útivistarparadísina í Laugardal, verslanir o.fl.


Allar nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og

löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Nánari lýsing: Íbúðin er rúmgóð og björt og er öll parketlögð nema þvottavélaaðstaða og baðherbergi sem eru flísalögð.

Í anddyri er rúmgóður fataskápur með hengi og efri skápum.

Inn af anddyri er rúmgott hol með stórum glugga með útsýni að Esjunni sem áður var nýtt sem herbergi. Auðvelt er að koma því fyrir á ný eða færa eldhúsið í það.

Eldhús með fallegri, upprunalegri innréttingu. Nægt skápapláss. Útsýni að Esju út um eldhúsglugga. Rúmgóður borðkrókur.

Stofa er stór og björt og er með útgengi út á stórar suðursvalir. Stofan nýtist mjög vel sem setu- og borðstofa.

Hægt er að taka niður létt vegg milli stofu og svefnherbergis.

Á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð og björt svefnherbergi með góðum skápum. Útgengt er úr hjónaherbergi á suðursvalir. Í klæðaskáp í hjónaherbergi er sauma/vinnukrókur.

Fyrir enda svefnherbergisgangs er þvottavélaaðstaða/geymsla sem er flísalögð og með góðu hilluplássi.

Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, innréttingu, skáp og glugga.

Í kjallara er rúmgóð sérgeymsla með glugga og góðu gólf- og hillurými. Frystikista fylgir með.

Auk geymslu í kjallara er sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi ásamt hjólageymslu.

Gróinn garður í suðurátt ásamt barnvænum leikvelli fyrir neðan lóðina. Góð bílastæði eru utan við húsið.

Eignin er á frábærum stað í Reykjavík og liggur vel við samgöngum. Strætisvagnastöðvar eru beint fyrir utan húsið.

Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Fasteignin Kleppsvegur 42

119.2 4 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1963
Fermetraverð : 750.000 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 76.600.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

89.400.000 Kr.
Hafðu samband