Kleppsvegur 134
104 ReykjavíkKleppsvegur 134 104
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð við Kleppsveg í Laugardalnum. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús og stofu með útgengi á 5,3 fm svalir.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Bókið skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofa með rúmgóðum fataskápum til lofts.
Baðherbergi með walk-in sturtu, vegghengt wc, lítil ljós viðar innrétting með vask og spegli að ofanverðu, hvítar flísar á veggjum og beige litaðar flísar á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með stórum fataskápi til lofts.
Eldhús er opið en stúkað af með millivegg, hvítar innréttingar með viðar borðplötu, ofn með helluborði og vifta undir efri skápum, fínt borðpláss inn af eldhúsi fyrir vinnuaðstöðu t.d.
Stofa er rúmgóð með útgengi á 5,3 fm svalir.
Sérgeymsla í kjallara hússins, 3,8 fm. Þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, þvottahús og þurrkherbergi.
Gólfefni: parket á gólfum að undanskildu baðherbergi.
Húsið sjálft og íbúðin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum og húsfélagið stendur vel.
*Íbúðin stendur tóm, þær myndir af stofu og svefnherbergi sem hafa húsgögn hafa verið unnar með aðstoð gervigreindar*
Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is