Kirkjusandur - 105 Miðborg
Fjölbreytileiki ræður ríkjum í íbúðabyggingum í hverfinu, hvort sem er litið er til skipulags, útlits, herbergjafjölda eða stærða íbúða, sem þar verða í boði. Útsýni af efstu hæðum til suðausturs yfir græna og gróna byggð og útivistarsvæði Laugardalsins.
Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1200 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum. Byggingaraðili er ÍAV hf. ÍAV hf. er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki Íslands í dag. Eitt stærsta verk ÍAV er Harpa, ráðstefnu og tónlistarhús Reykjavíkur. Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.