Kinnargata

Miklaborg og Vistbyggð ehf. kynna til sölu ný og glæsileg 5 herbergja svansvottuð raðhús á tveimur hæðum við Kinnargötu í Garðabæ. Um er að ræða umhverfisvæn og heilnæm hús. Húsin eru staðsett ofalega í neðarlega í austurhluta hverfisins við hlið golfvallar og stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og almenningsgarð. 

Raðhúsin við Kinnargötu 44-80 eru staðsett í þremur botnlöngum í suðurhluta Urriðaholts upp við Elliðavatnsveg sem liggur frá Setbergshverfi í Hafnarfirði að Vífilstaðavatni. Hinum megin við Elliðavatnsveginn til hliðar við húsin er golfvöllurinn Urriðavöllur sem talinn er vera einn af betri golfvöllum landins. Frá húsunum er víðáttumikið útsýni til allra átta og stutt er í víðáttur Heiðmerkur.Um er að ræða umhverfisvæn og heilnæm hús sem eru sérsniðin að þörfum nútímafólks, bæði jölskyldufólks og fólks sem stundar útivist og hreyfingu. Húsin eru kjörin fyrir fólk sem vill njóta kosta þess að búa í návígi við fallega náttúru og eiga heilnæmt afdrep frá amstri hversdagsins í heimili sínu.Húsin eru byggð úr krosslímdum timbureiningum í samstarfi við Element ehf.,

 

Miklaborg

Sjá skilalýsingu fyrir Kinnargötu

Sækja skilalýsingu
Sjá allar eignir í Kinnargötu