Kárastígur 12 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Til sölu eða leigu fallegt einbýlishús við Kárastíg í miðbæ Reykjavíkur, rétt við Skólavörðustíg. Húsið er töluvert mikið endurnýjað. Eignin er á tveimur hæðum auk kjallara. Frágengin lóð með sólpalli fyrir framan hús og stórum þaksvölum bakatil. Hellulagt bílastæði fyrir framan hús með hitalögn. Einstök staðsetning, frábært fjölskylduheimili

Myndirnar segja meira en 1000 orð.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Nánari lýsing:  Á jarðhæðinni er forstofa, forstofuherbergi, sólskáli, gestasalerni, þvottahús, sjónvarpsherbergi, stórt eldhús, stofa og borðstofa. Hluti af því fyrrnefnda var breytt í móttökurými frá því að eignin var með gistirekstur en slíkt leyfi fylgir ekki með eigninni.  Á annarri hæð eru þrjú herbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi með hornbaðkari og sturtu.  Útgengt út á þaksvalir bæði úr baðherbergi og einu svefnherbergjanna. Í kjallara hússsins er baðaðstaða með sturtu og saunaklefa. Lagnakjallari er undir öllu húsinu. Húsið var töluvert mikið endurnýjað árið 2005. Kvistur á efri hæð endurbyggður og stækkaður.   Allt rafmagn endurnýjað, sett innfelld lýsing að hluta. Gólfhiti í forstofu. Allt gólfefni endurnýjað, gegnheilt eikarparket. Nýtt eldhús og margt fleira. Um er að ræða sérlega skemmtilegt einbýlihús á þessum frábæra stað í miðbæ Reykjavíkur. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Kárastígur 12

178.1 8 Herbergi 2 Stofur 6 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1922
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 125.950.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

jr1
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
0 Kr.
Hafðu samband