Kaplaskjólsvegur 89 107

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð við Kaplaskjólsveg 89. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, herbergi og geymslu.

Um er að ræða bjarta íbúð í góðu húsi rétt við KR- völlinn og sundlaug Vesturbæjar, stutt í skóla og leiksskóla, heilsugæslu Vesturbæjar og verslanir. Auk þess er stutt í Háskóla Íslands, veitingastaði og kaffihús í göngu fjarlægð.


Nánari lýsing:

Forstofa: Parketlögð með skápum

Stofa: Parketlögð og þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir. 

Eldhús: Opið er á milli stofu og eldhús með dökkri irinnréttingu.  

Herbergi: Parkelagt með góðum skápum. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf.  með hvítri innréttingu og baðkari. 

Þvottahús: Þvottahús er á hæðinni sem nýtt er af 3 íbúðum og er hver íbúð með sína eigin vél og þurrkara auk skáps. 

Eigninni fylgir geymsla á jarðhæð.
Á efstu hæð stigagangsins er sameiginlegt gufubað með salernisaðstöðu, sturtu og sameiginlegar svalir.

Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og iðandi mannlíf miðbæjarins. 


 Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Fasteignin Kaplaskjólsvegur 89

51.0 2 Herbergi 1 Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1977
Fermetraverð : 1.068.627 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 53.000.000
Þvottahús : Sameiginlegt á hæð

Nánari upplýsingar veitir:

Kjartan
Kjartan Ísak Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali, B.Sc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík

Kjartan er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá HR ásamt sveinsprófi í matreiðslu frá Hótel og matvælaskólanum. Starfsferill Kjartans er fjölbreyttur og hefur Kjartan m.a. starfað sem framkvæmdastjóri, vörumerkjastjóri, verkefnastjóri og matreiðslumaður. Kjartan er kvæntur og á tvö börn.

54.500.000 Kr.
Hafðu samband