Jörfabakki 12 109

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Um er að ræða bjarta og snyrtilega 99,8 fm 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli en íbúðinni fylgir auka herbergi í kjallara með aðgengi að snyrtingu. Íbúðin er laus strax.

Forstofa er með fataskápum. Björt stofa en þaðan er útgengt á yfirbyggðar suðursvalir sem hægt er að opna, flísar á svalagólfi. Glæsilegt nýlegt eldhús og tæki með borðkrók innst við glugga. Svefnherbergin eru 3 og Skápar í aðalsvefnherbergi. Baðherbergi er flísalagt að hluta, baðkar með sturtu, wc, skápar undir vask og efri skápur. Einnig er gluggi með opnanlegt fag. Gólfefni er plast parket, flísar og dúkur.
Aukaherbergi í kjallara er 11,2 fm og í sameign er snyrting með wc og vask. Þar er einnig sér geymsla íbúðarinnar 11,9 fm ásamt sameigilegu þvottahúsi þar sem hver er með sína þvottavél. Leigutekjur af herbergi og geymslu í kjallara eru 130.000 á mánuði.

Hjóla- og vagnageymsla einnig í sameign.
 

Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.

Skólar og verslanir í hverfinu. Snyrtileg eign með útleigumöguleika.

Nánari upplýsingar veita Svan Gunnar Guðlaugsson síma 6979300 eða svan@miklaborg.is og Gabríel Máni Hallsson í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is

Fasteignin Jörfabakki 12

99.8 5 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1969
Fermetraverð : 636.273 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 55.250.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

gabriel
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.Sc. í viðskiptafræði

Gabriel Máni hóf störf hjá okkur veturinn 2023. Hann hefur víðamikla reynslu úr sölu og stjórnunarstörfum en hann hefur einnig starfað sem stuðningsfulltrúi fyrir fatlaða. Hann lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2024 en er einnig með Bs.c. gráðu í viðskiptafræði hjá Háskóla Íslands. Gabriel er uppalinn í Fossvogi og æfði knattspyrnu með Víking Reykjavík á yngri árum. Helstu áhugamál hans eru boltaíþróttir og ferðalög. 

63.500.000 Kr.
Hafðu samband