Hvítárbyggð 33 803

Selfoss

Lýsing

Miklaborg kynnir: Hvítárbyggð er lúxusbyggð og áfangastaður framtíðarinnar fyrir þá sem vilja byggja sitt eigið draumahús umvafið mögnuðu landslagi Djúpahrauns í Flóahreppi. Svæðið stendur við bakka Hvítár þar sem saman fer kyrrð, stórbrotið landslag og fjölskylduvænt umhverfi. Lóðirnar eru rúmgóðar og bjóða upp á mikla möguleika fyrir stórar og glæsilegar eignir. Hér skapast fullkomin umgjörð til að njóta lífsins allan ársins hring, hvort sem er til afslöppunar, útivistar eða samveru.

Staðsetning og nærumhverfi Einn stærsti kostur Hvítárbyggðar er staðsetningin. Hér færðu algjöra náttúrukyrrð en ert á sama tíma í næsta nágrenni við helstu þjónustukjarna og náttúruperlur Suðurlands:

  • Selfoss (10 mínútur): Öll helsta þjónusta, þar á meðal verslanir (t.d. Bónus), sundlaug, veitingastaðir, skólar og líkamsrækt.
  • Reykjavík (45 mínútur): Miðað við Olís í Norðlingaholti, sem gerir daglega eða vikulega viðveru á höfuðborgarsvæðinu vel yfirstíganlega.
  • Áfangastaðir: Stutt í þekkta staði á borð við Laugarás Lagoon, Flúðir, Skálholt, Geysir, Gullfoss, Friðheima, Hellu og Þjórsárdal.

Lagnamál og veitur Svæðið er vel undirbúið fyrir framkvæmdir þar sem bæði heitt og kalt vatn er til staðar til að tryggja þægindi og gæði.

  • Kalt vatn: Vatnsveita Áshildarmýrar ehf. sér um vatnsþörf svæðisins. Borholan er afkastamikil og staðsett í aðeins um 300 metra fjarlægð frá efstu lóðum.
  • Gæði og leyfi: Sýnatökur á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og MATVÍS komu mjög vel út. Vatnsvermdarsvæðið er norðan við dæluhúsið í Flóahreppi og unnið er að samþykktu starfsleyfi.
  • Tengigjöld: Heimtaug fyrir kalt vatn (miðað við einbýlishús með 25 mm röri, allt að 40 metrum inn að húsvegg)

Afþreying og lífsgæði Hvítárbyggð er hönnuð fyrir fólk sem metur útivist og hreyfingu:

  • Veiðiréttur: Lóðareigendur fá veiðirétt í Hvítá sem telur 2 stangir gegn vægu gjaldi.
  • Golf: Draumur golfarans; 8 fjölbreyttir golfvellir eru í aðeins 9–28 mínútna akstursfjarlægð.
  • Útivist: Frábærar og öruggar göngu- og hjólaleiðir beint út frá lóðarmörkum sem henta allri fjölskyldunni.


Nánari upplýsingar veita:

Jón Rafn lögg fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Friðrik Stefánsson lögg. fasteignasali í síma 616-1313 eða fridrik@miklaborg.is

Óskar Sæmann lögg. fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Hvítárbyggð 33

11226.0 0 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2026
Fermetraverð : 1.773 Kr/m²
Byggingargerð : Sumarbústaðaland
Fasteignamat : 4.300.000

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
19.900.000 Kr.
Hafðu samband