Hverfisgata 76 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg og Jón Rafn fasteignasali kynna: Björt hæð við Hverfisgötu með mikilli lofthæð – Þrjú bílastæði fylgja.


Við Hverfisgötu 76 stendur virðuleg og mikið endurnýjuð 170,5 fm hæð á annarri hæð hússins þar sem aukin lofthæð og stórir gluggar skapa einstaka upplifun. Hér fara saman nútímaleg þægindi og klassískur stíll í nýlega innréttaðri eign. Það verður að teljast mikill kostur á þessum stað að eigninni fylgja þrjú sérmerkt bílastæði á baklóð, sem tryggir öruggt og þægilegt aðgengi fyrir heimilisfólk jafnt sem gesti allan ársins hring. Aðeins þrjár íbúðir eru í húsinsu sem er með lyftu.


Pantið einkaskoðun hjá Jóni Rafni fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Rými og upplifun

Gengið er inn í bjart og rúmgott alrými sem rúmar vel bæði stofu og setustofu. Mikil lofthæð sem lyftir eigninni á annan stall og stækkar rýmið ásamt því að gefa eigninni virðulegan blæ. Innréttingar og gólfefni eru nýleg og vönduð, þar sem hlýtlegt parket bindur rýmin saman á stílhreinan hátt. Breidd hæðarinnar er tæpir 17 metrar með gluggum meðfram allri framhliðinni sem snýr út að Hverfisgötu.

Herbergi og bað Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru þau sérstaklega rúmgóð. Eitt þeirra sker sig úr fyrir stærð, en það er um 26 fermetrar og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Annað svefnherbergið er útbúið sér baðherbergi. Hreinlætisaðstaða íbúðarinnar er vel skipulögð; auk sérbaðherbergisins er til staðar snyrting og aðskilið rými með sturtu, sem eykur þægindi og liðkar fyrir morgunferlum fjölskyldunnar.

Eldhús er búið öllum helstu tækjum og þaðan er útgengt á suðursvalir sem eru nýlegar.

Hús og nágrenni Húsið er búið lyftu og sameignin er snyrtileg og vel um gengin.

Staðsetningin er eftirsótt í hjarta borgarinnar þar sem stutt er í iðandi mannlíf. Í næsta nágrenni má finna fjölbreytta veitingastaði, kaffihús og menningu. Þjónusta er í göngufæri og stutt er niður á höfn eða Laugaveginn, en jafnframt er auðvelt að komast inn á helstu stofnbrautir. Þetta er eign fyrir þá sem leita að gæðum, rými og þeirri notalegu stemningu sem myndast þegar lofthæð og birta fá að njóta sín.

Frábær íverustaður fyrir fjölskyldufólk eða t.d. listamenn, heimastarfandi aðila eða einfaldlega fasteign sem tekur vel á móti þeim sem þarf á íbúð að halda þegar höfuðborgin er heimsótt hvort sem búið er erlendis eða utan höfuðborgarinnar.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Hverfisgata 76

170.9 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1965
Fermetraverð : 921.592 Kr/m²
Byggingargerð : Hæð
Fasteignamat : 124.600.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
157.500.000 Kr.
Hafðu samband