Hverfisgata 100 (101) 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilega 3ja herbergja endaíbúð með sérinngangi við Hverfisgötu 100. Íbúðin afhendist fullbúin með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Eignin er skráð 74.3 fm en af því er sérgeymsla 5,2 fm. Íbúð 101 skiptist í anddyri, eldhús og stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Húsið er skammt frá Stjörnuport og Vitatorgi bílastæðahúsum þar sem hægt er að kaupa bílastæðakort.

* LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING *

Bókið skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is 

Nánari lýsing:

Hverfisgata 100 er glæsilegt 12 íbúða fjölbýlishús á 4 hæðum.

Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur. Gott útsýni er úr mörgum íbúðum.

Frágangur íbúða að innan: Vandaðar innréttingar frá Voke3 í eldhúsi, á baði og í herbergjum (söluaðili er Voke-III á Íslandi ehf). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki frá Electrolux, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð.

Frágangur utanhúss: Sameign, stigagangur og lyftuhús ásamt útveggjum og burðarveggjum fyrstu hæðar er úr járnbentri steinsteypu. Ofan á steypta plötu yfir fyrstu hæð leggjast timbureiningar fyrir 2., 3. og 4. hæð. Fyrsta hæð er einangruð að innan en á hæðum 2-4 eru einangraðar timbureiningar klæddar viðhaldsléttri álklæðningu að utan. Timbur/ál gluggar með hljóðeinangrandi gleri sem snýr að Hverfisgötu.

Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati).

Hluti verksins er endurgerð eldri húsa þar sem efri hæðir eru teknar niður en jarðhæðin endurgerð og nýtt áfram. Ofan á steypta jarðhæð koma 3 hæðir og eru þær úr timbureiningum. Stigahús og lyftustokkur var steypt upp allar hæðir áður en timbureiningar voru reistar og virkar sem burðarvirkiskjarni sem styrkir bygginguna.

Nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Hverfisgata 100 (101)

74.3 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1930
Fermetraverð : 994.616 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 66.650.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

gabriel
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.Sc. í viðskiptafræði

Gabriel Máni hóf störf hjá okkur veturinn 2023. Hann hefur víðamikla reynslu úr sölu og stjórnunarstörfum en hann hefur einnig starfað sem stuðningsfulltrúi fyrir fatlaða. Hann lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2024 en er einnig með Bs.c. gráðu í viðskiptafræði hjá Háskóla Íslands. Gabriel er uppalinn í Fossvogi og æfði knattspyrnu með Víking Reykjavík á yngri árum. Helstu áhugamál hans eru boltaíþróttir og ferðalög. 

73.900.000 Kr.
Hafðu samband