Hvannalundur 9 210
GarðabærLýsing
Miklaborg kynnir: Einbýlishús á einni hæð í rólegri botnlangagötu við Hvannalund 9 á eftirsóttum stað í Garðabæ. Húsið hefur nær allt verið endurnýjað bæði innan- og utandyra á síðastliðnu ári til að gera fallega eldri eign að glæsilegu nútímalegu einbýlishúsi. Húsið stendur á stórri sólríkri lóð þar sem byggingarreitur hefur ekki verið fullnýttur og heimild er fyrir að stækka húsið allt að 270 fm á einni hæð samkvæmt gildandi deiluskipulagi. Seljendur óska eftir tilboði í eignina.
***Bókið skoðun***
Húsið að Hvannalundi 9 var byggt árið 1972 og er birt stærð þess hjá fasteignaskrá 131 fm, þar af er bílskúr skráður 37,9 fm. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr með heitu- og köldu vatni og þriggja fasa rafmagni.
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Við tekur bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu rými. Eldhúsið er með nýjum innréttingum, blöndunartækjum, flís á borði og eldunareyju. Stofa og borðstofa eru með góðri lofthæð og gluggum sem veita góða birtu. Baðherbergi er flísalagt með nýrri innréttingu og sturtuklefa með gleri. Á mót við baðherbergið eru tvö samliggjandi svefnherbergi. Þvottahús er flísalagt með innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og þaðan er útgengt á stóran pall með heitum potti, útisturtu og góðri grillaðstöðu. Af palli er hægt að ganga inn í bílskúr. Bílskúrinn er rúmgóður með aukinni lofthæð, heitu- og köldu vatni og þriggja fasa rafmagni. Lóðinn sem nær umhverfis húsið er snyrtileg og gróðursæl.
Gólefni
Nýtt niðurlímt eikarparket er á öllum rýmum að undanskildu anddyri, baðherbergi og þvottahúsi en þar eru nýjar flísar.
Endurbætur innanhús:
Húsið hefur nær allt verið endurnýjað að innan. Meðal annars var ofnakerfi skipt út fyrir gólfhita, allar raflagnir-, tengi og rofar endurnýjaðar og komið upp þriggja fasa rafmagni í bílskúr. Nýr hljóðdúkur og lýsing sett í loft í allt húsið að undanskyldu anddyri, þvottahúsi og baðherbergi. Öllu gólfefni í húsinu var skipt út fyrir nýtt. Eldhús sem fyrir var fjarlægt og það opnað að stofu og borðstofu. Nýtt eldhús er með flís á borði, eldunareyju, nýjum eldhústækjum, nýjum blöndunartækjum og helluborði með gufugleypi. Gluggakistur sem fyrir voru fjarlægðar og í staðinn settar nýjar með sömu flís og er í eldhúsi. Baðherbergi allt endurnýjað. Þvottahús allt endurnýjað með innréttingum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Allar hurðir innandyra endurnýjaðar.
Endurbætur utanhús:
Húsið allt yfirfarið að utan. Meðal annars var húsið múrað og málað uppá nýtt. Gluggar voru málaðir og nýjir ál-botnlistar settir í alla glugga. Skipt um gler þar sem þess þurfti. Þak var yfirfarið og málað. Þakkantur var yfirfarin og lagaður á þeim stöðum sem þess var þörf. Nýjar flísar settar í þrep við inngang. Bílaplan var grófjafnað og settar nýjar hellur meðfram húsi að inngangi.
Möguleiki á stækkun:
Húsið stendur á lóð þar sem byggingarreitur hefur ekki verið fullnýttur og miðað við gildandi deiluskipulag er heimild fyrir að byggja allt að 270 fm á einni hæð. Seljandi er með arkitekt og byggingarverktaka sem eru klárir í verkefnið. Fyrir hendi eru teikningar frá Kristinni Ragnarssyni arkitekt sem sýna hvernig húsið gæti litið út miðað við um 55 fm stækkun.
Allar nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is