Hringhamar 8 (301) 221

Hafnarfjörður

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulagðar og vistvænar 40-155 fm íbúðir í Hamranes hverfinu í Hafnarfirði. Flestar íbúðir falla undir Hlutdeildarlán hjá HMS.

-Burðarvirki hússins er CLT burðarkerfi frá Element, sem er krosslímt gegnheilt timbur og er sagður heilsueflandi og umhverfisbætandi byggingarmáti.

- Íbúðirnar munu vera BREEAM vottaðar og stefnt að “Excellent” einkunn, sem yrði hæsta einkunn sem veitt hefur verið í íbúðarverkefni á Íslandi.

- Sérstæð loftræsting frá Swegon fyrir hverja íbúð, sem tryggir loftgæði og innivist. Gólfkerfi frá Granab í Svíþjóð sem tryggir góða hljóðvist.

- Innréttingar frá VOKE3 og tæki frá Electrolux. Hágæða baðherbergi eru forframleidd og koma frá Green Box í Danmörku.

- Lagnaleiðir lagðar að bílastæðum fyrir rafhleðslu, gert ráð fyrir að hægt sé að leggja að stæðum.

Verð frá: 45 milljónum.

Nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu verkefnisins

NÁNARI LÝSING: Björt og vel skipulögð 80,1 fm 3ja herbergja íbúð á 3.hæð. Komið inn í anddyri með skápum og þaðan gengið inn í alrými. Eldhús er með fallegri innréttingu frá Voke3, sem skilast með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og örbylgjuofn. Eldhús er opið inní bjarta stofu með gluggum á tveimur hliðum. Útgengt er á svalir í suður. Baðherbergi er með góðri innréttingu, upphengdu salerni og þröskuldslaus sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Tvö góð svefnherbergi með fataskápum. Eigninni fylgir geymsla í kjallara.

Íbúðin afhendist fullbúin en án gólfefna.

Allar nánari upplýsingar veita

Bára Gunnlaugsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Fasteignin Hringhamar 8 (301)

80.1 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2025
Fermetraverð : 786.517 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 43.000.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

bara
Bára Gunnlaugsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Bára lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2023.  Hún er einnig menntuð innanhússarkitekt og útskrifaðist í mílanó 2007. Bára hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist heimilum og hönnun, allt frá skipulagi og stíl til notagildis og andrúmslofts. Hún er búsett í kópavogi, gift og á 3 börn. 

63.000.000 Kr.
Hafðu samband