Hringhamar 37 (104) 221

Hafnarfjörður

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Glæsilegt fimm hæða fjölbýlishús með fjölbreyttu úrvali íbúða á góðum stað í hinu nýja Hamrahverfi í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Greið samgönguleið er til og frá svæðinu um nýja Ásvallabraut. Til afhendingar strax.

***ATH nýtt verð, hægt að sækja um hlutdeildarlán***


Bókið skoðun hjá Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali sími 697-9300 eða svan@miklaborg.is


Íbúð 104- 112,9 fm fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérmerktu stæði í bílakjallara.

Nánari lýsing eignar

Forstofa með fataskáp. Eldhús með eyju, falleg innrétting frá Ormson og tæki frá AEG. Stofa með gluggum til norður og vestur með útgengi út á svalir. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum.

Eigninni fylgir 9,6 fm geymsla og stæði B07 í bílakjallara.


Nánari upplýsingar er að finna á HEIMASÍÐU verkefnisins.


Dverghamrar ehf hafa yfir 30 ára reynslu á byggingarmarkaði. Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru á réttum tíma.


Nánari upplýsingar veita

Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali sími 697-9300 eða svan@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson aðst.m. fasteignasala sími 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Fasteignin Hringhamar 37 (104)

114.8 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 701.220 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 82.550.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sv
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali

Svan Gunnar Guðlaugsson hefur um 30 ára reynslu úr bankageiranum og starfaði þar frá 1981 bæði hjá Íslandsbanka og Byr síðast sem útibússtjóri. Svan hefur aflað sér mikillar þekkingar í gegnum starf sitt á fasteignamarkaðnum og þekkir vel til smærri sem stærri mála húsnæðismarkaðsins hvort heldur er í atvinnu- eða íbúðarhúsnæði. Svan er mikill golfari og áhugamaður um íþróttir enda mikill keppnismaður. Svan á 4 dætur.

80.500.000 Kr.
Hafðu samband