Hringhamar 25 (603) 221

Hafnarfjörður

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Glæsilegt fjölbýlishús með 2ja til fimm herbergja íbúðum á frábærum stað í hinu nýja Hamrahverfi í Hafnarfirði.

- FLESTAR ÍBÚÐIR FALLA UNDIR HLUTDEILDARLÁN HMS.

- Sérmerkt bílastæði fylgir öllum íbúðum með möguleika á rafbílahleðslu við hvert stæði.

- Nálægð við náttúru og skóla og er leikskóli er fyrirhugaður í nokkra metra fjarlægð.

- Ný Ásvallabraut veitir greiða samgönguleið til og frá svæðinu.

- Vandaðar Arens innréttingar og tæki frá Ormsson. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft.

Íbúð 603. Vel skipulögð og björt 85 fm, þriggja herbergja íbúð á 6. hæð.

 

EIGNIN FELLUR UNDIR HLUTDEILDARLÁN HJÁ HMS www.hlutdeildarlan.is

 

NÁNARI LÝSING: Eignin skiptist í anddyri/hol með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er á aðra hönd svefnherbergi með skápum og baðherbergi er með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum er inn af alrými. Eldhús er með fallegri innréttingu og er opið inn í rúmgott alrými, þar sem einnig eru stofa og borðstofa. Svalir með sandblásnu gleri eru út af alrými. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna. Vandaðar innréttingar frá Arens (sölu- og þjónustuaðili: Ormsson).


ATH myndir úr sýningaríbúð


https://hringhamar21-25.is/


Allar nánari upplýsingar veita

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 6592634 eða stefan@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Hringhamar 25 (603)

85.0 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 810.588 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 5.130.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

Böddi
Böðvar Þ. Eggertsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Böddi starfaði áður sem hárgreiðslumaður í 34 ár og hefur mjög góða reynslu í mannlegum samskiptum. Hann hefur einnig unnið við að hanna innanhúss, hótelíbúðir, viðburðarhús og tvö einbýlishús á síðustu þremur árum og stýrði einnig að hluta uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi. Hann hefur átt og rekið hárgreiðslustofur bæði hér og í Svíþjóð. Böddi er giftur og á 4 dætur og er búsettur í Hafnarfirði. Áhugamál eru líkamsrækt og allt sem viðkemur mótorsporti og hraða.

68.900.000 Kr.
Hafðu samband