Hrauntröð - Vaðnes 10 805

Grímsnes

Lýsing

Miklaborg kynnir: Sérlega vandað og glæsilegt heilsárshús á friðsælum stað í landi Vaðness, Grímsnesi. Engu hefur verið til sparað við byggingu hússins hvort sem litið er til efnisvals eða tækja. Húsið er á 7.572 fm eignarlandi sem er vel gróið fallegum þéttum birkigróðri. Glæsilegur arkitektúr með gluggum sem ná frá gólfi upp í loft og flóttaleiðir eru úr öllum svefnherbergjum. Fallegar parketflísar eru á gólfum en gólfhiti er í öllu húsinu ásamt gestahúsi. Eldhús og baðherbergi eru með vönduðum tækjum. Þetta er heilsárshús sem býður upp á notalegar stundir fyrir þá sem vilja láta fara vel um sig í sveitinni, hvort sem er í notalegu alrými stofu, gufubaði, palli eða í heita pottinum. Hús sem þessi koma sjaldan í sölu.


Húsið er klætt Lerki og með tvöföldum þakpappa.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Rúmgott með fataskáp fyrir yfirhafnir.

Þvottahús: Stæði fyrir þvottavél og gott pláss fyrir auka ísskáp eða frysti. Innrétting með skúffum.

Alrými: Stofa og eldhús í opnu og björtu rými sem er rúmlega 50 fm að stærð. Eldhúsinnrétting með eldunareyju þar sem er bæði vaskur og span helluborð með innbyggðum gufugleypi. Kvarts borðplötur og vönduð tæki m.a. vínskápur og ísskápur með klakavél. Góð lýsing er fyrir ofan eyju og einnig er led lýsing undir eyju sem snýr í átt að stofu. Mikið skápapláss í eldhúsi.

Stofa: er mjög björt með gólfsíðum gluggum og rennihurð þaðan sem útgengt er á viðarverönd. Stórfenglegt útsýni með íslenskum birkigróðri sem umvefur húsið. Í lofti stofu og eldhúss er hljóðdempandi klæðning. Falleg kamína er í stofu sem veitir bæði yl og hlýju og setur mikin svip á stofurýmið.

Svefnherbergi: Hjónasvíta með sér baðherbergi þar sem er vönduð innrétting og sturta með innbyggðum blöndunartækjum og upphengd salernisskál, samtals um 34 fm að stærð. Tvö önnur herbergi, annað þeirra með fataskáp. Frá hjónasvítu er útgengt á verönd þaðan sem stutt er í heita pottinn. Minni herbergin er með stórum opnanlegum gluggum sem nýtast sem flóttaleið.

Baðherbergi: Sturta (walk in) upphengd salernisskál, blöndunartæki ofan á fallegri innréttingu og útgengt á verönd í átt að heitum potti.

Gestahús: Aðskilið frá aðalhúsi með stóru svefnherbergi með útgengi á verönd og fataskáp. Baðherbergi með sturtu, upphengd salernisskál, handlaug ofan á skápainnréttingu. Í gestahúsi er handsmíðuð gufa (blaut & þurrgufa) af bestu gerð með þægilegri lýsingu.


Smelltu hér til að fá gögn um Hrauntröð 10


Loftskiptikerfi er í húsinu sem tryggir ferskt loft allan ársins hring án þess að þurfa að opna glugga. Öryggiskerfi er í húsinu og myndavélar utandyra. Verönd er úr 100% Síberíu lerki og heitur pottur frá Trefjum.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Hrauntröð - Vaðnes 10

210.7 5 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 3 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2020
Fermetraverð : 851.922 Kr/m²
Byggingargerð : Sumarbústaður
Fasteignamat : 151.850.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
179.500.000 Kr.
Hafðu samband