Hraungata 1 210

Garðabær

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg, vel skipulögð íbúð á annari hæð í nýlegu lyftuhúsi á góðum útsýnisstað í Urriðaholtishverfi Garðabæjar. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, rúmgoðum stofum og eldhúsi. Sérþvottahús er innan íbúðar og stæði í opnu bílskýli fylgir. Íbúðin getur verið laus fljótlega.

Allar nánari upplýsingar gefur: Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401.

Nánari lýsing: Um er að ræða mjög rúmgóða, smekklega íbúð.

Flísalagt anddyri með fataskáp. Þaðan er gengið í parketlagt svefnherbergi með skáp og í flísalagt baðherbergi með glugga og "walk in" sturtu.

Eldhús með hvítri innréttingu, þar er AEG spanhelluborð og AEG bakaraofn í vinnu hæð og flísar á gólfi. Góður borðkrókur er í eldhúsi.

Rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi á stórar suðursvalir með frábæru útsýni. Vesturendi stofu hefur verið stúkaður af sem vinnukrókur, en auðvelt að opna.

Parket er á stofu.

Svefnherbergi, parketlagt með skápum.

Hjónaherbergi er parketlagt með skápum. Gengt er frá hjónaherbergi í baðherbergi með baðkari með sturtuhaus, flísalagt að hluta.

Flísalagt þvottaherbergi er innan íbúðar. Gólfhiti er í íbúðinni.

Á jarðhæð er geymsla með hillum.

Bílastæði undir þaki fylgir og fyrir innan það er lítil sérgeymsla sem hentar fyrir dekk, hjól vagna o.fl.

Vönduð íbúð á góðum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ.


Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401.




Fasteignin Hraungata 1

180.5 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2015
Fermetraverð : 758.449 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 127.700.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

136.900.000 Kr.
Hafðu samband