Hraunbrekkur 28
320 HálsahreppurHraunbrekkur 28 320
HálsahreppurLýsing
Miklaborg og Böddi kynna:
Hraunbrekkur 28 – Húsafelli
Einstaklega fallegt og sérhannað 128,8 fm heilsárshús á 1.000 fm eignarlóð á
einum fallegasta og friðsælasta stað í Húsafellsskógi.Eignin er einstaklega vel
staðsett inni í grónu kjarri sem skapar mikið næði og rólegt umhverfi allt árið
um kring. Húsið er hannað í glæsilegum nútíma/fönkisstíl með flötu þaki, stórum
gólfsíðum gluggum og fallegri tengingu milli innirýmis og náttúrunnar fyrir
utan.Nánari uppl:
Böddi Lgf S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Aðalbyggingin skiptist í opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa
renna fallega saman. Stór eldhúseyja er miðpunktur rýmisins og fallegur
hangandi arinn gefur húsinu einstakan karakter og hlýlegt yfirbragð. Stórar
rennihurðir opnast út á rúmgóða timburverönd sem umlykur húsið.
Í aðalbyggingu eru þrjú góð svefnherbergi ásamt baðherbergi
með sturtu og útgengt út á verönd þar sem heitur pottur, kaldur pottur og
tunnusauna skapa einstaka spa stemningu.
Í aukabyggingu er svefnherbergi,
þvottahús og geymsla, öll rými með sérinngangi — hentugt fyrir gesti eða sem
sveigjanlegt aukarými.
Stór timburverönd umlykur húsið
með yfirbyggðu svæði, heitum potti, köldum potti og tunnusauna sem gerir
eignina sérstaklega aðlaðandi til heilsársnotkunar
Helstu kostir:
Eignarlóð – engin lóðarleiga
Gróin og skjólgóð lóð með miklu næði
Heitur pottur, kaldur pottur og sauna
Stór timburverönd með yfirbyggðu svæði
Aukabygging með sérinngangi
Heilsárshús með hitaveitu og gólfhita
Gólfhitakerfi endurnýjað 2026
Einstök staðsetning í Húsafellsskógi
Byggt 2008
Húsafell er eitt eftirsóttasta
frístundasvæði landsins með góðri þjónustu allt árið um kring, golfvelli,
sundlaug, hóteli, veitingastað og fjölmörgum náttúruperlum í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:
Böddi lgf. S: 821-6300
boddi@miklaborg.is