Hraunbær 2 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: 4. Herbergja endaíbúð á annari hæð við Hraunbæ 2, 110 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til suðurs.


Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfum, góðum gluggum til suðurs og austurs og útgengi út á svalir til suðurs. Eldhús með kork á gólfi, eikar innréttingu með plássi fyrir ísskáp, uppþvottavél, ofni í vinnuhæð, helluborði og háf. Í eldhúsi er borðkrókur. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, góðum fataskáp og útgegni út á svalir til austurs. barnaherbergin eru tvö, með parketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari, salerni, vask, skáp og handklæðaofni. 5,fm sérgeymsla er í kjallara hússins sem og sameiginleg hjóla- og vagna geymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkaðstaða.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is




Fasteignin Hraunbær 2

109.3 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1967
Fermetraverð : 639.524 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 71.400.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
69.900.000 Kr.
Hafðu samband