Holtsvegur 41 210

Garðabær

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fjögurra herbergja íbúð á annari hæð með útsýni til suðurs í þessu fallega lyftuhúsi við Holtsgötu 41 í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, gestasalerni, geymslu og bílastæði í bílakjallara.


Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Eldhús og stofa eru í góðu opnu alrými með gluggum til suðurs og austurs og útgengi á 24 fm svalir. Eldhús með hvítri innréttingu og eikar lituðum efriskápum og ljósgráum stein á borðum, Ofni í vinnu hæð helluborði og viftu, innbyggðri uppþvottavél og plássi fyrir ísskáp. Hjónaherbergi er með góðum fataskáp og gluggum á tvo vegu. Barnaherbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð með fataskáp. Gestasalerni er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, innréttingu með vask og góðum skáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari með sturtu aðstöðu, handklæðaofni, upphengdu salerni, hvítri innréttingu með skúffum, góðum hilluskáp og spegli. Sér þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi og hvítum skáp. Sér geymsla (16,8 fm) er á 1 hæð. Sér stæði merkt B04 er í bílakjallara þar sem einnig er sameiginleg dekkjageymsla. hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð.

Gólfefni íbúðarinnar er parket nema á votrýmum þar sem eru flísar.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Holtsvegur 41

147.7 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2016
Fermetraverð : 777.928 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 112.050.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
114.900.000 Kr.
Hafðu samband