Hjallatangi 16 340

Stykkishólmur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýli á einni hæð við sjávarsíðuna. Hér gefst tækifæri til að eignast sérlega vel skipulagt og bjart einbýlishús á einni hæð, þar sem samspil þæginda og náttúru fær að njóta sín. Húsið er byggt árið 2001 og stendur á eftirsóknarverðri sjávarlóð þaðan sem skemmtilegt og kyrrlátt útsýni blasir við.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Eignin er samtals 196,7 fm, sem skiptist í 156,4 fm íbúðarhluta og 40,3 fm sambyggðan bílskúr. Skipulagið er opið og bjart, hannað með nútímaþarfir í huga.

Anddyri og alrými: Gengið er inn í flísalagða forstofu. Alrýmið er hjarta hússins en þar mætast eldhús, björt stofa og rúmgott hol. Parket er á gólfum í alrými og herbergjum, en gólfhiti er í eldúsi, baðherbergi, forstofu og á gangi, hluta hússins sem tryggir jafnan og þægilegan hita.

Eldhús og þvottahús: Eldhúsið er búið vönduðum innréttingum og flísum á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús með praktískum innréttingum sem auðvelda alla skipulagningu.

Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, öll með skápum. Innaf hjónaherbergi er veglegt fataherbergi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, útbúið bæði með sturtu og hornbaðkari – fullkominn staður til slökunar.

Aukarými og bílskúr: Milligangur með flísum tengir íbúðina við bílskúrinn, en þar er einnig að finna lítið herbergi sem nýtist frábærlega sem vinnuherbergi eða geymsla. Bílskúrinn er rúmgóður með sjálfvirkri hurð. Lloftaklæðningu ólokið).

Garður og umhverfi

Útisvæðið er sannkölluð vin fyrir fjölskylduna. Skjólgóð viðarverönd með heitum potti. Lóðin er fullfrágengin með matjurtagarði fyrir áhugafólk um ræktun. Framan við húsið er steypt bílastæði og hellulögð stétt. Hitalögn er í bílastæði (ótengd).

Þetta er eign fyrir vandláta sem leita að rúmgóðu fjölskylduhúsi á einstöku stað þar sem stutt er í náttúruna og útsýnið er í aðalhlutverki.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

www.jonrafn.is

Fasteignin Hjallatangi 16

196.7 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2001
Fermetraverð : 480.427 Kr/m²
Byggingargerð : Einbýlishús
Fasteignamat : 77.200.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
94.500.000 Kr.
Hafðu samband