Opið hús: 04.02.2026, 17:30 - 04.02.2026, 18:00

Hestavað 1 110

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir:

Björt og vel skipulögð 124 fm, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stæði í bílgeymslu.

NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum og fatahengi og þaðan gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistarverur íbúðarinnar. Eldhús er með góðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og er opið inn í bjarta stofu. Úr stofu er gengið út á stóra verönd sem er lokuð af með grindverki. Hjónaherbergið er rúmgott og með skápum. Baðherbergið er með baðkari, góðri innréttingu og upphengdu salerni. Tvö góð barnaherbergi með skápum og er annað sérlega rúmgott. Þvottahús er innan íbúðarinnar. Í kjallara er góð geymsla ásamt sér stæði í bílgeymslu þar sem búið er að leggja fyrir bílahleðslustöð.

GÓLFEFNI: Ljóst parket er á öllum gólfum að undanskyldu baðherbergi, anddyri og þvottahúsi en þar eru flísar.


BJÖRT OG VEL SKIPULÖGÐ 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉR INNGANGI OG STÆÐI Í BÍLGEYMSLU!!


Allar nánari upplýsingar veita

Óskar Sæmann Axelson löggiltur fasteignasali í síma 691 2312 eða osa@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Fasteignin Hestavað 1

124.1 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2007
Fermetraverð : 748.590 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 84.500.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
92.900.000 Kr.
Hafðu samband