Heiðarbraut 1 805

Grímsnes

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg og gróin sumarbústaðarlóð skammt frá höfuðborgarsvæðinu.

Falleg og gróin eignarlóð undir frístundarhús rétt við Borg í Grímsnesi. Lóðin er um hektari að stærð og á henni stendur gámur sem fylgir með í kaupunum.


Einstaklega vel staðsett og stór lóð innst í þessu hverfi, hentar þeim sem kjósa kyrrð og vilja fá að vera út af fyrir sig en jafnframt vera í göngufæri frá sundlaug.


Sumarhúsalóðin er eignalóð við Minniborgir í Grímsnes- og Grafningshreppi. Sumarhúsabyggðin er lokuð af með öryggishliði. Stutt í Grímsborgir, Laugarvatn, Selfoss og aðrar náttúruperlur eins og Kerið og Gullfoss og Geysi sem og ýmsa afþreyingu.


Samkvæmt seljanda er kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk.


Samkvæmt deiliskipulagi má byggja allt að 100fm hús auk gestahúss eða geymslu.


Sjá skipulag fyrir svæðið hér: https://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=3125


Allar frekari upplýsingar:

Árni Gunnar Haraldsson lgf arnig@miklaborg.is 8614161

Fasteignin Heiðarbraut 1

0.0 0 Herbergi - Stofur - Svefnherbergi - Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2025
Byggingargerð : Lóð
Fasteignamat : 3.170.000

Nánari upplýsingar veitir:

arnig
Árni Gunnar Haraldsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Árni er rafvirki og hefur starfað við það síðan um árið 2000 og rekið sitt eigið fyrirtæki síðan 2015. Árni er í sambúð, á þrjú börn og býr í Mosfellsbæ. Áhugamálin hans eru allskonar útivist.

7.400.000 Kr.
Hafðu samband