Hamravík 28 112

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á efstu hæð á fallegum stað í Víkurhverfinu í Grafarvoginum. Íbúðin er í húsinu innst í botlanga götunnar og húsið stendur vel á hæðinni upp á útsýni að gera. Húsið er byggt 2001 og Íbúðin er skráð 124,3 fermetrar og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús, þrjús svefnherbergi og sér 8,3 fermetra geymslu á jarðhæð.

Bókaðu skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Gengið er inn um sér inngang inn í forstofu sem er með stóran skáp til lofts, nýlegt teppi á gólfi sem hefur verið lagt ofan á flísar. Inn af forstofu er svefnherbergi með hvítum fataskáp til lofts og parketi á gólfi. Gengið er úr forstofu í opið alrými íbúðarinnar. Á hægri hönd eru tvö svefnherbergi, annað stærra en bæði með parket á gólfi og stóra hvíta fataskápa til lofts. Öll svefnherbergi snúa til norð-austurs og skarta fallegu útsýni. Við hlið svefnherbergjana er baðherbergi með ljósum flísum á gólfi og veggjum, uppengt klósett, baðkar með sturtu, falleg dökk viðarlituð innrétting með nýlegri ljósri borðplötu, innfeldur vaskur og stór spegill með baklýsingu. Í alrými er eldhús stúkað af á tveimur veggjum, opið sitthvoru megin við, dökk viðarlituð innrétting með nýlegum ljósum borðplötum, flísar á gólfi sem ná inn í borðstofu. Við hlið eldhússins er gengið inn í rúmgott þvottahús með vaskaðstöðu, ljósar flísar á gólfi. Stofan er stór og björt, útgengt á rúmgóðar og sólríkar svalir sem snúa í suð-vestur.

Á jarðhæð eru sérgeymslur íbúða og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Stór sameignilegur garður er á baklóðinni sem er vel við haldinn. Nóg af bílastæðum eru að farmanverðu og búið er að setja upp fjölda rafhleðslustöðva fyrir íbúa í hússins.

Eignin er vel staðsett í Víkurhverfinu en hverfið er hljóðlátt og fjölskylduvænt í nánd við fallega nátturu. Í nærumhverfi íbúðarinnar er leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli,, golfvöllur, Eglishöllin og Spöngin, falleg göngu- og hjólasvæði.

Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Fasteignin Hamravík 28

124.3 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2001
Fermetraverð : 723.250 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 75.850.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

gabriel
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.Sc. í viðskiptafræði

Gabriel Máni hóf störf hjá okkur veturinn 2023. Hann hefur víðamikla reynslu úr sölu og stjórnunarstörfum en hann hefur einnig starfað sem stuðningsfulltrúi fyrir fatlaða. Hann lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2024 en er einnig með Bs.c. gráðu í viðskiptafræði hjá Háskóla Íslands. Gabriel er uppalinn í Fossvogi og æfði knattspyrnu með Víking Reykjavík á yngri árum. Helstu áhugamál hans eru boltaíþróttir og ferðalög. 

89.900.000 Kr.
Hafðu samband