Hallgerðargata 3 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Hallgerðargötu Kirkjusandi, byggt 2020. Glæsilega innréttuð og með yfirbyggðum svölum. Sérsmíðaðar innréttingar klæddar hvíttaðri hnotu, loftskiptikerfi, gólfhiti og vönduð tæki. Aðgangur að bílastæðum í lokaðri bílgeymslu gegn hóflegu gjaldi.

Nánari lýsing:
Anddyri: Leiðir að stofu með baðherbergi á vinstri hönd.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sérsmíðuð innrétting . Walk-in sturta með Unidrain niðurfalli, handklæðaofn og upphengt klósett.  Einnig er stæði fyrir þvottavél og þurrkara í fallega vandaða innréttingu.
Stofa/Borðstofa:  Rúmgott alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum ásamt útgengi á yfirbyggðar svalir með fallegu útsýniParket á gólfi.

Eldhús: Sérsmíðað eldhús með vönduðum tækjum. Helluborð með háfi yfir. Skvettivörn milli efri og neðri skápa. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél er innbyggð.
Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum sérsmíðuðum fataskáp. Parket á gólfi. 

Svefnherbergi II: Minna herbergi sem nýta má til svefns eða skrifstofu t.d.
Svalir: Frá stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni til sjávar. Svalirnar hafa verið flísalagðar.
Geymsla: Í sameign er sér 8,1 fm geymsla.
Lóð: Vel hirt lóð í sameign.
Undir húsinu er bílastæðakjallari sem allir eigendur geta nýtt sér gegn vægu gjaldi, hvort heldur sem er til lengri eða skemmri tíma (Parka appið). Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Falleg og björt íbúð í vönduðu nýlegu fjölbýli. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu. 

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Hallgerðargata 3

89.0 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2020
Fermetraverð : 1.066.292 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 85.300.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

jr1
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
94.900.000 Kr.
Hafðu samband