Hallgerðargata 1A 105

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Stílhrein Studio íbúð á eftirsóttum stað á Kirkjusandi. Íbúðin er í lyftuhús á 2. hæð. Aðgangur er að sameiginlegum bílakjallara sem hægt er að vera með áskrift að en meðalverð er um 9 þúsund kr. á mánuði og ávallt tryggt að hægt sé að fá stæði í lokaðri geymslu.

Alrými: Bjart og opið rými þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í stílhreina heild. Útgengt er þaðan út á rúmgóðar svalir. Í rýminu er innfelldur fataskápur sem nýtist vel til geymslu.

Baðherbergi: Smekklegt með flísalögðu gólfi og hluta veggja. Vaskur í hagnýtri innréttingu, vegghengt salerni og sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er að finna í innréttingu.

Svefnrými: Svefnálma hefur verið stúkað af frá stofu og er útbúin fataskápum. Um er að ræða opið rými án hurða sem gefur sveigjanleika til frekari útfærslu.

Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni og er staðsett í sameignarrými í kjallara hússins.

Gólfefni: Harðparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi sem er flísalagt.

Innréttingar og tæki: Allar innréttingar eru frá Gerher í Litháen, og tæki í eldhúsi eru frá AEG.

Hús og sameign: Húsið er klætt að utan með slitsterku og lituðu áli. Sameignargangar eru óvenju rúmgóðir og snyrtilegir.

Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Hallgerðargata 1A

42.3 1 Herbergi - Stofur 1 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2023
Fermetraverð : 1.261.229 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 50.350.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

jr1
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteignasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
53.350.000 Kr.
Hafðu samband