Hagasel 28
109 ReykjavíkHagasel 28 109
ReykjavíkLýsing
Miklaborg kynnir: Raðhús á þremur hæðum með auka íbúð á jarðhæð við Hagasel 28. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, borðstofu, stofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sólskála, bílskúr og auka íbúð í kjallara. Aukaíbúð er þriggja herbergja og skiptist í baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu.
Eign sem er mikið efnurnýjuð síðustu 15 árin og vert er að skoða á besta stað í seljahverfi.
Bókaðu skoðun hjá Óskari Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, fatahengi er í forstofu sem og gestasalerni. Eldhús með eikarinnréttingu og flísum á gólfi, helluborði, háf, ofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og plássi fyrir amerískan ísskáp og örbylgjuofn. Stofa og borðstofa í opnu björtu rými með arin og gluggum á tvo vegu. á efri hæð eru þrjú barnaherbergi og hjónaherbergi með walk in fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og eikarinnréttingu með vask, speglaskáp og handklæðaskáp. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu með skolvask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sólskáli með útgengi út á rúmgóðar svalir með heitum pott. Bílskúr er með heitu og köldu vatni, undir bílskúr er góð geymsla.
Gólfefni íbúðarinnar er parket nema á votrýmum þar sem eru flísar, þeas. þvottahús, baðherbergi, eldhús og forstofa.
Í sumar var flísalagðar gögnuileiðir að húsinu og smíðaður pallur fyrir framan og aftan hús og skjólgirðing með ruslatunnuskýli og skýli fyrir eldivið. lóðin er því full frágengin og falleg með sér sólpalla fyrir báðar íbúðir.
Aukaíbúð á jarðhæð:
komið er inn í stofu sem er í opnu rými með eldhúsi. Eldhús með góðri innréttingu með hvítri borðplötu, eldavél og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Geymsla er undir stiga og góður fataskápur er þar einnig. Hjónaherbergi með góðum glugga. Barnaherbergi með walk in fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturtu, upphengdu salerni, innréttingu með vask og speglaskáp. Innangengt er milli íbúða um stiga sem er lokaður með læstri hurð frá báðum íbúðum.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson Löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is