Opið hús: 14.03.2026, 14:00 - 14.03.2026, 14:30

Hagamelur 43 107

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulögð og björt 91,5 fm, 3ja-4ra herbergja íbúð. Íbúðin er á 1.hæð í fjölbýli við Hagamel 43 á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, svefnherbergi, stofu, borðstofu (nýtt sem svefnherbergi í dag) með útgengi út á skjólgóðar suðursvalir og baðherbergi. Íbúðinni fylgir herbergi í kjallara (13,9 fm ) með aðgangi að sameiginlegri snyrtingu sem gæti nýst vel sem útleigueining. Í kjallara hússins er einnig sérgeymsla (4,3 fm), sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi ásamt vagna- og hjólageymslu.

Um er að ræða vel staðsetta eign í eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, göngufæri í vesturbæjarlaug og Melabúðina.

Bókið skoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing

Forstofa /hol: - Gengið er inn í forstofu / hol með tengingu við öll rými íbúðar, ljósar flísar á gólfi.

Stofa: Björt stofa með rennihurð sem hægt er að stækka á kostnað svefnherbergis, harðparket á gólfi.

Borðstofa: Samliggjandi við stofu en lokað af með rennihurð. Útgengt út á skjólgóðar suðursvalir. Hægt að opna og nýta sem borðstofu, er nýtt í dag sem svefnherbergi, harðparket á gólfi.

Eldhús: Rúmgott eldhús með borðkrók. Innrétting sérsmíðuð í upprunalegri mynd. Gott skápa og vinnupláss. Ljósar flísar á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, baðinnrétting með vaski og skúffu, speglaskápur fyrir ofan vask.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með innbyggðum fataskápum. Dúkur á gólfi.

Herbergi í kjallara: Rúmgott 13,9 fm herbergi. Innrétting með vaski. harðparket á gólfi. Sameiginleg snyrting.

Geymsla: Sérgeymsla 4,3 fm í kjallara.

Sameign: Sameiginlegt þvottahús með stæði fyrir þvottavél, þurrkherbergi og vagna- og hjólageymsla.

***Nýlegar framkvæmdir á hússinu má sjá á ástandsyfirlýsingu seljanda***

Bókið skoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is

Fasteignin Hagamelur 43

91.5 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1957
Fermetraverð : 840.437 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 73.100.000
Þvottahús : Sameiginlegt í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:

írisarna
Íris Arna Geirsdóttir
Löggiltur fasteignasali, M.A markaðsfræðingur

Íris útskrifaðist með B.Sc gráðu í Sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í Markaðsfræðum við háskóla á Ítalíu. Íris hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum og hefur meðal annars unnið sem markaðsstjóri. Íris er uppalin í Grafarvogi og býr í Úlfarsárdal ásamt eiginmanni sínum og dætur.

76.900.000 Kr.
Hafðu samband