Háberg 32 111

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: 5 herbergja parhús við Háberg 32, 111 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, stofu, borðstofu, geymslu og þvottahús. þetta hús er með mikla mögueika á að fjölga svefnherbergjum. Stutt er í verslun, skóla og íþróttasvæði.


Nánari lýsing

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Inn af forstofu er þvottahús og geymsla. Eldhús með eikar innréttingu með eldavél, viftu og plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, með baðkari, skáp, upphengdu salerni, eikar innréttingu mð skúffum, dökkri borðplötu og vask. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og tveimur fataskápum. Barnaherbergi með parketi á gólfi. Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á sólpall og garð sem snýr til austurs. Einnig er sólpallur sunnan og vestan við húsið. Úr stofu er tré stigi upp á efri hæð. Á efri hæð er herbergi og stórt og gott opið rými. skriðgeymsla er undir þaki á efri hæð. Eignini fylgir tvö bílastæði á sameiginlegu bílastæði við húsið og búið er að útbúa bílastæði við húsið á lóðinni.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Háberg 32

152.5 5 Herbergi 2 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1979
Fermetraverð : 635.410 Kr/m²
Byggingargerð : Parhús
Fasteignamat : 96.250.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
96.900.000 Kr.
Hafðu samband