Gullsmári 1 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Góða 75,2 fm þriggja herbergja íbúð á annari hæð auk 4,9 fm geymslu við Gullsmára 1, 201 Kópavogi. eignin skiptist í forstofu, eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi, barnaherbergi, stofu, borðstofu og geymslu.

Nýlegt parket.

Nýleg eldhúsinnrétting.

Nýlega skipt um allt á baðherbergi.

Nýlega máluð íbúð.

Eitt bílastæði á lóð merkt íbúð.

Íbúðin er skráð 75,2 fm samkvæmt HMS en að auki fylgir geymsla 4,9 fm samkvæmt eignaskiptasamning.

Nánari lýsing eignar.

Komið er inn í forstofu með fataskáp. Barnaherbergi með fataskáp. Eldhús með nýlegri hvítri HTH innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, helluborði, viftu, bakaraofni í vinnuhæð, tækjaskáp og plássi fyrir ísskáp. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með útgengi út á góðar svalir. Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, innréttingu með vask, handklæðaofni, sturtuklefa og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 4,9 fm sér geymsla er á jarðhæð.



Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Fasteignin Gullsmári 1

80.1 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1995
Fermetraverð : 897.628 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 63.550.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

sss
Óskar Sæmann Axelsson
Löggiltur fasteignasali

Óskar er með sveins- og meistararéttindi í bílamálun og hefur unnið í kring um bílageirann frá árinu 2001. Árið 2020 skipti svo Óskar um ham og fór í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala og réð sig í vinnu hjá Mikluborg. Óskar sleit barnaskónum í vesturbæ Reykjavíkur og er sjóðheitur KR-ingur og golfari. Óskar er giftur þriggja barna faðir og býr með fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

691-2312
71.900.000 Kr.
Hafðu samband