Opið hús: 21.04.2026, 17:30 - 21.04.2026, 18:00

Goðasalir 3 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Goðasalir 3, 201 Kópavogur. Miðjuraðhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr og stórum svölum, samtals 217,3 fm.


Íbúðin er samtals 190,1 fm ( niðri 90,8 fm / uppi 99,3 fm) og bílskúrinn 27,2 fm. Húsið stendur ofan við götu. Mikið útsýni til suðurs og vesturs yfir Kópavoginn, Reykjanesið og Snæfellsjökul. Fjögur svefnherbergi. Góð aðkoma, næg bílastæði og stutt í margvíslega þjónustu í rótgrónu hverfi. Parket og flísar á gólfum. Þak endurnýjað fyrir þremur árum og ný bílskúrshurð.



Nánari lýsing:

Á neðri hæðinni er forstofa, salerni ásamt sturtuklefa, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, geymsla og þvottahús. Innangengt í bílskúrinn.

Útgengt út í garð fyrir aftan hús. Verönd fyrir framan hús.


Góður steyptur stigi á milli hæða.


Á efri hæðinni stofa, borðstofa, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi innaf ásamt baðherbergi með hornbaðkari.

Stórar svalir út frá stofu með miklu útsýni.


Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205 - velkomið að panta tíma fyrir skoðun.

Fasteignin Goðasalir 3

217.3 6 Herbergi 2 Stofur 4 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2000
Fermetraverð : 777.727 Kr/m²
Byggingargerð : Raðhús
Fasteignamat : 157.450.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

g
Gústaf Adolf Björnsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og íþróttafræðingur

Gústaf hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2005. Hann er íþróttafræðingur að mennt og starfaði um árabil sem íþróttakennari og þjálfari í fótbolta og handbolta. Gústaf er búsettur í Kópavogi, er kvæntur, á þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. Áhugamál Gústafs eru íþróttir og útivist, ferðalög og dægurmál.

169.000.000 Kr.
Hafðu samband