Gnoðarvogur 82 104

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilega efstu hæð í fjórbýli við Gnoðarvog 82. Íbúðin er skráð 130,9 fermetrar og skiptist í forstofu, alrými með stofu og eldhúsi með útgengi á svalir, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Stór suðurgarður fylgir húsinu. Frábær staðsetning steinsnar frá verslun og þjónustu.


Bókið einkaskoðun hjá Þresti Þórhallssyni löggiltum fasteignasala í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Gengið er inn um sameiginlegan stigagang að framanverðu húsinu upp á stigapall á efstu hæð. Þar er inngangur í íbúðina, komið er inn í forstofu með stórum innbyggðum fataskápum þar sem svefnherbergisgangur er á vinstri hönd og alrými á hægri hönd. Alrýmið er rúmt og þar eru stofa, borðstofa og eldhús með eyju. Inn af eldhúsinu er þvottahús og útgengt á fallegar þaksvalir með útsýni til norðurs. Á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Í hjónaherberginu eru innbyggðir fataskápar á heilum vegg ásamt fataherbergi með skápum. Í stærra aukaherberginu eru stórir fataskápar. Á baðherberginu er uppengt klósett og walk-in sturta með riffluðu gleri. Falleg handlaug með gylltum blöndunartækjum, veggskapur með spegli. Flísar á gólfi og veggjum til lofts að hluta til, gluggi með opnanlegu fagi. Eikar innihurðir eru hannaðar af danska hönnunarhúsinu Dinesen fyrir danska hurðarframleiðandann Vahle

Gólfefni: Fallegt parket á gólfum er gegnheil hnota. í öllum rýmum nema á baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi eru flísar. Gólfhiti í allri íbúðinni. Íbúðin var endurgerð 2022 og þá var þak endursmíðað ásamt einangrun og settur þakpappi. Allir gluggar nema einn eru nýlegir. Sérgeymsla er í sameign undir útitröppum. Ath. íbúðin er skráð samkv. Þjóðskrá Ísl. 130,9 m2 en yfirbygging á svölum í norður hefur verið tekin niður og íbúðin er því í raun um 120,9 m2 að stærð fyrir utan svalir. Einstakt útsýni í allar áttir.


Frábær staðsetning steinsnar frá verslun og þjónustu í Skeifunni. Menntaskólinn við Sund og Vogaskóli eru í 5. mín. göngufjarlægð.


Nánari upplýsingar veita:

Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Fasteignin Gnoðarvogur 82

130.9 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1958
Fermetraverð : 0 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 92.000.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

gabriel
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.Sc. í viðskiptafræði

Gabriel Máni hóf störf hjá okkur veturinn 2023. Hann hefur víðamikla reynslu úr sölu og stjórnunarstörfum en hann hefur einnig starfað sem stuðningsfulltrúi fyrir fatlaða. Hann lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2024 en er einnig með Bs.c. gráðu í viðskiptafræði hjá Háskóla Íslands. Gabriel er uppalinn í Fossvogi og æfði knattspyrnu með Víking Reykjavík á yngri árum. Helstu áhugamál hans eru boltaíþróttir og ferðalög. 

0 Kr.
Hafðu samband