Gljúfrasel 7 109

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Parhús á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr á frábærum stað í Seljahverfinu í 109 Reykjavík. Jarðhæðin skiptist í forstofu, eldhús með búri, stofu og borðstofu, svalir, baðherbergi, hjónaherbergi og svefnherbergi. Neðri hæðin skiptist í svefnherbergi, tvær geymslur, opið vinnurými og þvottahús, þar að auki er tveggja herbergja auka íbúð með sérinngangi á hæðinni. Eignin er samtals 307,4 fermetrar og þar af er bílskúrinn 43,4 fermetrar skv. skráningu.

Bókið skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni lögg. fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Nánari lýsing

Jarðhæðin: Gengið er inn í forstofu með mynstruðum flísum á gólfi. Þaðan er gengið inn í bjart og opið rými með mikilli lofthæð þar sem stofa, borðstofa og sjónvarpshol eru, flotað gólf. Í stofu er einnig arinn við fallega steinlagðan vegg. Eldhúsið er í sér rými, góð lofthæð og vænlegur eldhúskrókur með dökkri viðarinnréttingu, gluggar á tvo vegu með opnanlegu fagi. Inn af eldhúsi er rúmgott búr með hillum, korkur á gólfi í báðum rýmum. Baðherbergið er innangengt af bæði stigapalli og hjónaherbergi. Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með handlaug, salernisskál, baðkar með sturtu. Hjónaherbergi er rúmgott með góðri lofthæð, stórum fataskáp sem nær til lofts á heilum vegg og parket á gólfi. Auka herbergi er á hæðinni við hlið eldhúss með góðri lofthæð og parket á gólfi. Af stigapalli er útgengt á stórar svalir sem snúa til suðurs.

Neðri hæðin: Þegar komið er niður stiga þar sem opið vinnurými er í holi. Þvottahús og geymslur eru einnig á hæðinni. Hjá stigapalli inn af gangi er stórt svefnherbergi með parket á gólfi, einnig er útgengt af stigapalli út í gróinn garð. Í garðinum, sem er í japönskum anda, hannaður af er stórt skjólgott skýli með palli og kaldri geymslu. Á neðri hæðinni er einnig 2ja herbergja íbúð sem er í útleigu. Þar er eitt svefnherbergi, eldhús, stofa og baðherbergi. Sérinngangur að aukaíbúðinni er á vestur hlið hússins, gengið niður meðfram húsinu.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er 157.100.000 kr.-

Allar nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson lögg. fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Fasteignin Gljúfrasel 7

307.4 7 Herbergi 2 Stofur 4 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1980
Fermetraverð : 497.398 Kr/m²
Byggingargerð : Parhús
Fasteignamat : 139.850.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

gabriel
Gabriel Máni Hallsson
Löggiltur fasteigna- & skipasali og B.Sc. í viðskiptafræði

Gabriel Máni hóf störf hjá okkur veturinn 2023. Hann hefur víðamikla reynslu úr sölu og stjórnunarstörfum en hann hefur einnig starfað sem stuðningsfulltrúi fyrir fatlaða. Hann lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2024 en er einnig með Bs.c. gráðu í viðskiptafræði hjá Háskóla Íslands. Gabriel er uppalinn í Fossvogi og æfði knattspyrnu með Víking Reykjavík á yngri árum. Helstu áhugamál hans eru boltaíþróttir og ferðalög. 

152.900.000 Kr.
Hafðu samband