Glæsihvarf 2 203
KópavogurLýsing
Miklaborg kynnir: Glæsilegt tæplega 300 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 56 m2 bílskúr. Húsið stendur á frábærum útsýnisstað og lóðin er óvenjustór eða 1.227 m2.
Húsið getur verið laust til afhendingar fljótlega. Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Komið er inn í flísalagt anddyri og þar eru rúmgóðir fataskápar. Stofur eru stórar og bjartar en opið er á milli stofu og eldhúss og er eldhúsið með vönduðum tækjum og innréttingum. Steinn er á borðum í eldhúsi og er það opið og bjart með útsýnisgluggum. Úr stofum er útgengt í sólskála sem er með fallegum flísum á gólfum. Þrjú stór svefnherbergi eru í húsinu og eru þau öll með parketi á gólfum. Hjónaherbergi er bæði með fataskápum og fataherbergi og útgengt er úr hjónaherbergi í hellulagðan garðinn. Baðherbergi hússins er með vönduðum innréttingum og í því er bæði baðkar og sér sturta. Þvottahús er við hliðina á bílskúr og þar fyrir framan er gestasnyrting. Bílskúr er skráður 56 m2 og er bæði með innkeyrslu og gönguhurð. Innangengt er úr bílskúr í húsið. Innfelld lýsing er í loftum í öllum rýmum hússins nema þvottahúsi og bílskúr. Lofthæðin í eldhúsi, stofu, sjónvarpsrými og forstofu er 3,4 metrar en hefðbundin lofthæð annars staðar.
Lóðin umhverfis húsið er glæsileg og er bæði hellulögð og með timburpalli. Á pallinum er heitur pottur og lítið útihús.
Vönduð eign á eftirsóttum stað.
Bókið skoðun: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali, sími 8970634 - throstur@miklaborg.is