Buðlabryggja 29-31

Buðlabryggja 29-31

Íbúðirnar eru hannaðar með gæði og langtímasjónarmið að leiðarljósi. Húsin eru einangruð að utan og klædd vandaðri álklæðningu sem tryggir lítið viðhald og sterka endingu. 

Innandyra er vandaður frágangur í fyrrirúmi: sandspartslaðir og málaðir veggir, slétt loft og flotuð gólf sem bíða eftir gólfefnavali nýrra eigenda.

Húsin samanstanda af alls 103 íbúðum af fjölbreyttum stærtðum og gerðum. Boðið er upp á vel skipulagðar 1-4 herbergja íbúðir, bæði á jarðhæð með sérafnotareit og á efri hæðum með rúmgóðum svölum.

Lögð hefur verið áhersla á góða nýtingu rýma, hagkvæmt skipulag og björt alrými. Þannig geta bæði einstaklingar, pör og fjölskyldur fundið íbúð sem hentar þeirra lífstíl.

Hér færðu nútímalegar, endingargóðar og fallegar íbúðir í umhverfi sem lofar góðu til framtíðar.

 

 

Gjúkabryggja10-12

Hér má sjá skilalýsingu.

Sækja skilalýsingu
steini
Steinn Andri Viðarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Steinn útskrifaðist sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2023. Hann hefyr brennandi áhuga á golfi og knattspyrnu. Steinn er Liverpool maður og er búsettur í Grafarvogi ásamt unnustu og syni.

bara
Bára Gunnlaugsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Bára lauk námi til löggildingar fasteigna- og skipasala vorið 2023.  Hún er einnig menntuð innanhússarkitekt og útskrifaðist í mílanó 2007. Bára hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist heimilum og hönnun, allt frá skipulagi og stíl til notagildis og andrúmslofts. Hún er búsett í kópavogi, gift og á 3 börn. 

fr
Friðjón Örn Magnússon
Löggiltur fasteignasali, B.A í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Friðjón er löggiltur fasteignasali og stjórnmálafræðingur. Friðjón rak áður tvö íbúðahótel ásamt eiginkonu sinni og býr nú með henni og börnum sínum þremur í Mosfellsbæ. Hann sér um sölu fasteigna.

sss
Sæþór ÓIafsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

-

Kristinpeturs
Kristín Pétursdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Kristín er löggiltur fasteignsali frá árinu 2003 og hefur starfað á Mikluborg frá árinu 2020. Hún er fædd og uppalin vestur á Bíldudal og heldur mikilli tryggð við Vestfirði. Kristín býr í Kópavogi, er gift og á tvö uppkomin börn. Áhugamál eru samverustundir með fjölskyldu og vinum en einnig útivist í fallegri náttúru, ferðalög, sögulegur fróðleikur og tónlist.