Opið hús: 19.04.2026, 15:00 - 19.04.2026, 15:30

Gerðarbrunnur 2 (101) 113

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulagða og fallega þriggja til fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð við Gerðarbrunn 2 ásamt stæði í opinni bílageymslu og sérgeymslu í kjallara. Íbúðin er skráð 94,9 fm og þar af er geymsla 8,2 fm. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, bjarta geymslu sem hægt er að nýta sem barnaherbergi, baðherbergi, eldhús og stórt alrými þar sem útgengt er út á svalir sem snúa í vestur. Eignin getur verið laus við kaupsamning!

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is

Nánari lýsing

Í forstofu eru fataskápar og parket á gólfi. Til vinstri er skráð geymsla innan íbúðar, björt með stórum glugga sem hægt er að nota sem skrifstofu eða barnaherbergi. Frá Forstofu er gengið inn í alrými eignar. Þar er fallegt eldhús. Hvít innrétting með innbyggðri uppþvottavél og gert ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Parket á gólfi. Stofa og borðstofa einnig í alrými eignar. Parket á gólfi. Þaðan er útgengt út á vestur svalir. Við hlið stofu er rúmgott og bjart hjónaherbergi. Parket á gólfi og fataskápar. Bjart barnaherbergi við hlið eldhúss. Parket á gólfi og einfaldur fataskápur. Fallegt baðherbergi með sturtu, upphengdu WC, hvítri innréttingu með upplýstum spegli fyrir ofan skolvask. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi.

í sameign í kjallara er sérgeymsla íbúðar, skráð 8,2 fm ásamt hjóla- og vagnageymslu. Bílastæði í opinni bílageymslu fylgir einnig íbúðinni.

Virkilega falleg og góð eign á frábærum stað neðst í Úlfarsárdalnum þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Fram auk sundlaugar. Einnig eru fjölbreyttar gönguleiðir í kringum Reynisvatn og Úlfarsfell ásamt öðrum náttúrúperlum.

Eignin getur verið laus við kaupsamning!

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is





Fasteignin Gerðarbrunnur 2 (101)

94.9 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 2020
Fermetraverð : 820.864 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 75.900.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

fr
Friðjón Örn Magnússon
Löggiltur fasteignasali, B.A í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Friðjón er löggiltur fasteignasali og stjórnmálafræðingur. Friðjón rak áður tvö íbúðahótel ásamt eiginkonu sinni og býr nú með henni og börnum sínum þremur í Mosfellsbæ. Hann sér um sölu fasteigna.

77.900.000 Kr.
Hafðu samband