Garðhús 33 112

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt vel skipulagt endaraðhús á skjólgóðum stað í Grafarvogi. Húsið skiptist í forstofu, stofur eldhús, þvottahús og gestasnyrtingu á neðri hæð. Fjögur svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol á efri hæð. Geymsluris er yfir efri hæðinni. Stór og skjólgóð lóð með mjög góðri útiaðstöðu. Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.


Neðri hæð: Flísalögð forstofa með fataskáp, gengt frá forstofu í flísalagða gestasnyrtingu og þvottahús.

Rúmgóð stofa með fallegu parketi og útgengi á hellulagða verönd.

Eldhús með vandaðri innréttingu frá frá 2005, með búrskáp, Siemens spanhelluborði og ofni í vinnuhæð.

Efri hæð: Á efri hæðinni er sjónvarpshol.

Baðherbergi sem var endurnýjað árið 2004, flísalagt með sturtuklefa og baðkari og upphengdu salerni Gluggi er á baðherbergi.

Fjögur svefnherbergi eru á teikningu, en eitt þeirra er nýtt sem fataherbergi í dag. Fallegur Linoleum dúkur er á svefnherbergjum.

Frá efri hæðinni er útsýni að Esju og víðar.

Lóð: Lóðin er skjólgóð og með góðri útiaðstöðu og fallegum gróðri.

Bílskúr: Endabílskúr með hita, vatni og rafmagni.

Umhverfi: leikvöllur er á grænu svæði við raðhúsalengjuna og er hann í umsjón húseigenda.


Fallegt vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum á rólegum, skjólgóðum stað í Húsahverfi Grafarvogs.

Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Fasteignin Garðhús 33

174.7 5 Herbergi 1 Stofur 4 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1992
Fermetraverð : 793.932 Kr/m²
Byggingargerð : Raðhús
Fasteignamat : 115.750.000
Þvottahús : Sér

Nánari upplýsingar veitir:

viddi
Viðar Böðvarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Viðar stofnaði fasteignasöluna Fold árið 1994 og hefur starfað við fasteignasölu í yfir fjóra áratugi. Viðar er kvæntur og á eina uppkomna dóttur og tvö barnabörn. Hann hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1980. Áhugamál Viðars eru allt sem viðkemur tónlist, ferðalög, lestur góðra bóka og allt sem viðkemur lífi og listum.

138.700.000 Kr.
Hafðu samband