Opið hús: 21.05.2026, 16:00 - 21.05.2026, 16:30

Galtalind 15 201

Kópavogur

Lýsing

Miklaborg kynnir: 93,3 fm íbúð á þriðju hæð vel skipulögð með rúmgóðum svefnherbergjum og stóru alrými.

Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum með fataskápum og flísalagt baðherbergi þar sem er baðkar með sturtu. Sér þvottahús er innan íbúðarinnar sem eykur þægindi til muna. Stofan er sérlega rúmgóð með opið eldhús þar sem er mikið skápapláss og eldunareyja með skúffum. Útgengt er á svalir frá eldhúsi sem er flísalagt og sérlega rúmgott. Eigninni fylgir 6,3 fm sérgeymsla í kjallara ásamt aðgangi að sameiginlegri hjólageymslu og garði með leiktækjum. Staðsetningin er frábær og fjölskylduvæn þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Fasteignin Galtalind 15

93.3 3 Herbergi 1 Stofur 2 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1997
Fermetraverð : 841.372 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 69.850.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

jónrafn
Jón Rafn Valdimarsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Jón Rafn hefur áratuga reynslu í sölu og markaðssetningu og hefur starfað við sölu fasteigna í 20 ár þar sem fjöldi aðila hefur leitað til hans vegna sölu á öllum tegundum fasteigna. Hann er áreiðanlegur, ávallt til taks, og leggur sig fram við að tryggja viðskiptavinum sínum besta verð fyrir eignir þeirra. Með bakgrunn í sölu- og markaðsstörfum, auk reynslu sem matsmaður fyrir íslenskum sem erlendum dómstólum má segja að Jón hafi puttan á púlsinum. Jón Rafn er sérfræðingur í sölu sérbýla og stærri eigna.

695-5520
78.500.000 Kr.
Hafðu samband