Funafold 12 112

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallegt og vel skipulagt parhús við Funafold 12 í Reykjavík, staðsett í botnlanga á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað. Húsið er afar sjarmerandi og nýtur sín vel með stórum gluggum til suðurs sem gefa fallega birtu inn í stofu og tengja hana við bakgarðinn. Fjögur svefnherbergi og auðvelt að bæta fimmta herberginu við.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing
Neðri hæð:

Forstofa er björt, með góðum fatskáp, flísar á gólfi og hiti í gólfi. Innangengt úr forstofu í innbyggðan bílskúr.

Hol er inn af forstofu.

Gestasnyrting er inn af holi.

Eldhús er með hvítri innréttingu með góðu borðplássi. Bakaraofn í vinnuhæð og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Hiti í gólfi. Borðkrókur tengir eldhús við borðstofu.

Samliggjandi stofa og borðstofa eru rúmgóðaðar og bjartar með útgengt á stóran sólpall. Arinn í stofu.

Efri hæð:

Stigi með teppi liggur upp á efri hæð. Komið er upp á stigapall með rúmgóðu sjónvarpsholi, mikilli lofthæð, stórum glugga til suðurs og tveimur þakgluggum sem gefa góða birtu.

Hjónaherbergi er með stórum fataskáp og útgengt á svalir.

Tvö rúmgóð barnaherbergi eru með fataskáp.

Eitt minna herbergi sem getur nýst sem skrifstofa eða lítið svefnherbergi. Var áður ætlað sem geymsla.

Baðherbergi er með svartri innréttingu, baðkari, sturtuklefa, opnanlegum glugga og flísalagt upp veggi.

Þvottaherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu með skolvask í borðplötu. Opnalegur gluggi.

Bílskúr: Innbyggður með hita, rafmagni og rennandi vatni.

Rúmgott geymsluloft er yfir hluta efri hæðar.

Tvö bílastæði eru við húsið, annað þeirra upphitað.

Bakgarður er skjólgóður og nýtur mikils næðis þar sem friðaður mói er við enda lóðarinnar.

Eignin er staðsett á vinsælum og eftirsóttum stað í Foldahverfi í Reykjavík, í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi. Í næsta nágrenni eru bæði grunnskóli og leikskóli, sem gerir staðsetninguna sérstaklega hentuga fyrir barnafjölskyldur.

Fallegar og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir eru allt í kring, meðal annars við Grafarvog, Elliðaárvog og meðfram strandlengjunni upp að Geldinganesi, sem býður upp á frábæra möguleika til útivistar.

Þá er gott aðgengi að helstu stofnæðum, sem tryggir þægilegar samgöngur um höfuðborgarsvæðið.


Fasteignin Funafold 12

172.6 6 Herbergi 1 Stofur 5 Svefnherbergi 2 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1988
Fermetraverð : 796.640 Kr/m²
Byggingargerð : Parhús
Fasteignamat : 123.600.000
Þvottahús : Sér innan íbúðar

Nánari upplýsingar veitir:

Kjartan
Kjartan Ísak Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali, B.Sc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík

Kjartan er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá HR ásamt sveinsprófi í matreiðslu frá Hótel og matvælaskólanum. Starfsferill Kjartans er fjölbreyttur og hefur Kjartan m.a. starfað sem framkvæmdastjóri, vörumerkjastjóri, verkefnastjóri og matreiðslumaður. Kjartan er kvæntur og á tvö börn.

137.500.000 Kr.
Hafðu samband