Opið hús: 19.04.2026, 17:00 - 19.04.2026, 17:30

Freyjugata 32 101

Reykjavík

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg og björt þakíbúð á mjög eftirsóttum stað í Freyjugötu, gegnt styttugarði Listasafns Einars Jónssonar. Húsið er eitt af þessum fallegu og virðulegu húsum sem einkenna þennan hluta Skólavörðuholtsins. Um er að ræða fjórbýlishús með einni íbúð á hverri hæð. Húsið stendur fyrir neðan götu og bakvið hús er stór sameiginlegur garður til suðurs. Róleg einstefnugata í stuttu göngufæri við allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Þegar komið er úr gönguferð úr miðbænum er mjög skemmtilegt að velja aðkomu að húsinu í gegnum styttugarð Einars Jónssonar.


Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali throstur@miklaborg.is
 

Nánari lýsing: Íbúðin var nær öll endurgerð árið 2018 m.a. rafmagn, lagnir, gólfhiti í allri íbúð og innbyggð hljóðkerfi frá Bang & Olufsen í eldhúsi, stofu og baðherbergi. Íbúðin er stærri en skráning segir til um þar sem hluti hennar er undir súð - Grunnflötur hennar er 105,5 m2, góð nýting á herbergjum og rýmum undir súð. Komið er inn í bjarta og rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi. Úr forstofu er gengið annars vegar inn í herbergi og hins vegar inn á gang. Herbergið er bjart með þakgluggum og fallegu útsýni yfir Hallgrímskirkju og Listasafn Einars Jónssonar. Parket á gólfi og fataskápur.  Af gangi er gengið inn í svefnherbergi, baðherbergi og stofur.  Baðherbergi er rúmgott með eldri sérsmíðaðri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baði. Svefnherbergi er bjart með þakgluggum og fallegu útsýni yfir Hallgrímskirkju og Listasafn Einars Jónssonar. Parket á gólfi og sérsmíðaður fataskápur.  Stórar og bjartar stofur eru samliggjandi með opnu og fallegu, nýlegu eldhúsi í öðrum endanum, borðstofu og dagstofu. Í dag er  búið að stúka af svefnherbergi með léttumm millivegg þar sem áður var dagstofa. Loft eru upptekin í stofunni og nær 4 m. lofthæð yfir borðstofu sem gefur íbúðinni mikinn karakter og léttleika. Frá stofu er gengið út á suður/suðvestur svalir með fallegu útsýni. Stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Eldhús er nýlega endurnýjað. Falleg hvít innrétting og parket á gólfi. Íbúðinni fylgir geymsluloft og lítil geymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla er einnig í kjallara. Ljósleiðari er tengdur inn í íbúð. Geymsluloft er yfir hluta íbúðarinnar.

Dásamlegt útsýni yfir borgina. Úr íbúðinni sést Hallgrímskirkja, Esjan, Perlan og margt fleira. Á veturna sjást norðurljósin vel úr íbúðinni sem og flugeldarnir á gamlárskvöld.

Góðar suður/suðvestur svalir með fallegu útsýni sem njóta sólar stærstan hluta dags. 

Stór skjólgóður suðurgarður og stutt í allar áttir.


Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali throstur@miklaborg.is
 

Fasteignin Freyjugata 32

89.1 4 Herbergi 1 Stofur 3 Svefnherbergi 1 Baðherbergi

Upplýsingar

Byggingarár : 1932
Fermetraverð : 1.116.723 Kr/m²
Byggingargerð : Íbúðareign
Fasteignamat : 83.000.000
Þvottahús : Inni á baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:

m2
Móeiður Svala Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Móeiður útskrifast sem löggiltur fasteigna- og skipasali vorið 2024. Fyrir utan gríðarlegan áhuga hennar á arkítektúr og innanhúshönnun þá hefur hún verið í hestamennsku frá ungum aldri og elskar alla útivist. Hún er alin upp í hlíðunum Reykjavík en býr nú í Garðabænum.

899-8278
99.500.000 Kr.
Hafðu samband